Skinfaxi - 01.12.1989, Page 54
persónugervingur mótsins í
aðalhlutverki og kynnirLandsmótið
á skemmtilegan og lifandi hátt.
Nú þegar hafa verið útbúin
endurskinsmerki og límmiðar sem
ungmennafélagar um allt land fá send
á næstunni og er hér um gott tækifæri
að ræða til að hefja rækilega
kynningu heima í héraði á 20.
Landsmóti UMFÍ í Mosfellsbæ.
Landsmótsnefnd UMFÍ hvetur allar
ungmennafélaga til að standa sem
best að undirbúningi mótsins og nota
endurskinsmerkin og límmiðana til
að kynna mótið og ná upp samstöðu
og stemmningu innan hvers
héraðssamands og félags.
Landsmótið er hápunktur hverju
sinni í starfi ungmennafélaganna og
hefur það sýnt sig að þessi langstærsti
einstaki íþróttaviðburður sem á sér
stað á íslandi hverju sinni, hefur
orðið ungu fólki hvati til að stunda
íþróttir. S.R. IH
Frá síðasta Landsmóti UMFÍ á Húsavík 1987. Það er œtíð stefnt á að gera
Landsmótin glœsilegri en þau nœstu á undan.
Forkeppni í knattspyrnu
Forkeppni í knattspyrnu karla og kvenna fyrir
20. Landsmót UMFÍ í Mosfellsbæ er lokið.
Hún fór fram síðastliðið haust og gekk vonum
framar þrátt fyrir stutt keppnistímabil. Nokkuð
erfiðlega gekk að skipuleggja keppnina og kom
þar margt til. Þar má nefna að svæðaskiptingin var
bundin af reglugerð, ferðakostnaður var mikill og
kom til viðbótar við kostnað hinna árlegu leikja.
Einnig var erfitt að finna tíma til leikja vegna leikja
ídeildar- og úrslitakeppni móta innan KSÍ. Tíminn
var einnig stuttur en þátttakan var gleðilega mikil.
Þarsem 11 liðtilkynntuþátttökuíkarlakeppninni
í B riðli varð að skipta honum í tvennt (B1 og 2).
Á sambandsþingi UMFÍ í lok október var síðan
samþykkt að fjölga liðum á Landsmótinu úr 6 í 8.
Tvö efstu lið í hvorum B hluta riðilsins fara í
lokakeppnina á Landsmótinu í Mosfellsbæ
næstkomandi sumar.
Mikil, óvænt og ánægjuleg þátttaka varð í
forkeppni kvenna fyrir knattspyrnukeppni
Landsmótsins. Þartilkynntu 121iðþátttökuogeru
það fleiri lið en tóku þátt í íslandsmótinu í sumar.
Fæst þessara liða sem tóku þátt í forkeppninni eiga
sæti í 1. deild Islandsmóts KSÍ og virðist það
benda til að kvennaknattspyma sé stunduð í meiri
mæli en KSÍ mótin gefa til kynna.
HSÞ sá um skipulagningu og framkvæmd norð-
austur riðils karla. Um kvennariðlana sáu USVH,
UÍA og UMSK. Öll stóðu þessi samönd sig með
miklum sóma.
Riðlar á Landsmóti
verða þannig skipaðir:
Karlar Konur
Ariðill B riðill Ariðill B riðill
UMFK UMSK UMSK UMSE
USAH UMSE UÍA HSK
HSH UMFG UDN USÚ/HSÞ
UÍÓ UMSS
Ekki er enn útkljáð hvort USÚ eða HSÞ fara í
úrslitakeppnina á Landsmótinu.
54
Skinfaxi