Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.12.1989, Page 70

Skinfaxi - 01.12.1989, Page 70
GesturGuðmundsson,fyrr\>erandiformaðurBreiðabliksogoftnefndur „faðirfélagsins” .tekurfyrstuskóflustunguna að upphituðum ogflóðlýstum gervigrasvelli. Fyrsta skóflustungan á nýju félagssvœði Breiðabliks Upphitaður sandgrasvöllur tekinn í notkun næsta haust Sunnudaginn 29. október undirrituðu Kópavogskaupstaðurog Ungmennafélagið Breiðablik í Kópavogi samstarfssamning um uppbyggingu fjölþættrar íþrótta- aðstöðu á hinu nýja félagssvæði Breiðabliks viðKópavogsvöll. Strax að undirritun lokinni tóku Breiðabliksmenn fyrstu skóflustung- una að framkvæmdum á svæðinu. Fyrsta verkefnið sem ráðist er í er lagning gervigrasvallar, en á 40 ára afmæli Breiðabliks í byrjun næsta árs er gert ráð fyrir að hefjast handa við byggingu félags- og vallar- aðstöðu. í kjölfarið fylgir síðan bygging íþróttahúss. I þessum fyrsta áfanga uppbyggingar á félagssvæðinu er einnig gert ráð fyrir kastsvæði fyrir frjálsar íþróttir, frágangi stíga og gróðurs, heildarskipulagningu alls svæðisins ofl. I deiliskipulagi, sem nú hefur verið staðfest af Skipulagsstjóm ríkisins, er til viðbótar gert ráð fyrir átta tennisvöllum, nýjum grasvelli, öðru íþróttahúsi, göngu- og trimmbrautum víða um svæðið og handknattleiks- og körfuknattleiks- völlum utan dyra í nágrenninu. Æfingaraðstaða verður síðan sett upp fyrir golfiðkendur, reiðstígar lagðir, aðstaða sett upp fyrir mínígolf og gert er ráð fyrir því að á vetuma geti bæjarbúar skautað á upplýstu svelli. Tímamótamarkandi samningur Kristján Guðmundsson, bæjar- stjóri Kópavogs og Logi Krist- jánsson, formaður Breiðabliks, undirrituðu samstarfssamning aðilanna. I honum er gert ráð fyrir 70 Skinfaxi

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.