Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1944, Page 44
eins og kunnugt er, hefir að undanförnu ríkt hið
mesta ólag í því efni, hve óhentug voru orðin hlut-
föllin milli skipstjórnarréttindanna. Þá var það
orðin hin mesta plága að mikil brögð voru að ]jví
að stærð nýrra báta var miðuð við „réttindi“ þess
sem átti að vera formaður. Helztu breytingar sem
FFSI leggur til í þessu efni er, að afnumið verði
hið minna fiskimannapróf, þ. e. 75 smál., en í stað
þess komi aðeins eitt fiskiskipstjórapróf. Og í öðru
lagi að 15 smál. réttindin fyrri verði nú miðuð
við 30 smál.
Ilefir stjórn FFSI fellt þær breytingar sem í
sambandi við þetta þurfti að gera inn í hin eldri
lög, og í samráði við skólastjóra stýrimannaskól-
ans í Reykjavík, lagt fram tillögur sínar við Al-
þingi en Sjávarútvegsnefnd neðri deiidar hefir
tekið að sér að flytja frumvarp um þetta á Al-
þingi. Er þess að vænta þar sem allir fulltrúar
FFSÍ, einmitt þeirra manna, sem við þetta eiga
mest að búa, og bezt þekkja inn á þes'si mál, voru
algjörlega sammála, að mál þetta fáist fljótlega
afgreitt á þingi.
Svohijóðandi bráðabirgða ákvæði eru í frv.:
í næstu 5 ár eftir að lagabreytingar þessar
koma til framkvæmda, skal þeim, er lokið hafa
hinu minna fiskimannaprófi samkv. Jögum nr.
104 frá 1936 eða smáskipaprófi samkv. lögum nr.
40 frá 1922, gefinn kostur á að ganga undir sér-
stakt próf við Stýrimannaskólann í Reykjavík,
er veiti sömu réttindi og núverandi fiskimanna-
próf, enda hafi þeir siglt sem skipstjórar eða stýri-
menn í 36 mánuði a. m. k. og hafi náð 35 ára aldri.
Atvinnumálaráðherra setur reglugerð um próf
þetta, að fengnum tillögum skólastjóra Stýri-
mannaskólans í Reykjavík og fulltrúa frá Far-
manna- og fiskimannasamb. Islands.
Væntanlega verður séð hvernig afgreiðslu þetta
mál hefur fengið þegar næsta blað kemur út og
verður þess þá nánar getið.
Sambandsþingið sendi Alþingi áskorun er var
undirrituð af öllum fulltrúum, þess efnis að Al-
þingi veitti svo ríflega fé til byggingu sjómanna-
sleólans nýja ,að hægt væri að halda byggingu
hans sleitulaust áfram, svo a. m. lc. tvær hæðir
hússins yrðu tilbúnar undir kennslu veturinn
1944—45. Með því væri tvennt unnið, dregið úr
fyrirsjáanlegum atvinnuskorti í bænum og flýtt
fyrir þarflegri byggingu, sem enga bið þolir, að
leomið sé upp.
Samþylikt var till. um brt. á siglingalögunum
frá 1914 um skiptingu björgunarlauna skipshafna.
Liggur það mál nú fyrir Alþingi í frumvarpsformi
flutt af Sigurjóni Ólafssyni meðan hann var á Al-
þingi um tíma í vetur, í fjarveru Stef. Jóh., er
frumvarp þetta byggt á tillögumFFSl, en þó að
allverulegu atriði brugðið frá. Ilafa nú stjórnir
FFSl og Alþýðusambands Islands rætt innbyrðis
þann ágreining er þarna kemur fram, og er þess
að vænta að samkomulag náist um sameiginlega
niðurstöðu í þessu efni.
Álylitanir í þessum efnum voru samþylcktar, og
hefir þeim verið komið áleiðis til Adðeigandi að-
ilja: Ályktun um starfrækslu talstöðva. Um
bandalag vinnandi stétta. Um samtrygging og
björgunarlaun. Um síldarverðið síðastl. sumar.
Um löndunartækin á Raufarhöfn. Um sölu sjáv-
arafurða. Friðun Faxaflóa.
Fulltrúi FFSl í rannsóknarnefnd á rekstri Síld-
arverksmiðja ríkisins 1942—43, Haraldur Guð-
mundsson, skipstj. Isaf., Jýsti í ýtarlegu máli
störfum nefndarinnar og niðurstöðum. Sagðist
hann vilja standa við það hvar sem væri að ásak-
anir og óánægja sú, er komið hefði fram af hálfu
sjómanna í ýmsum efnum þessu viðvíkjandi væri
fullkomlega á rökum reist, að sínu áliti. Var hon-
um þakltað af sambandsfulltrúum fyrir samvizku-
samlega og mikla vinnu er haun lagði fram i
þessu efni og góðan árangur, þrátt fyrir að ýmsu
leyti erfiðar aðstæður.
HLUSTUNARTÍMI AKRANESBÁTA
á vetrarvertíðinni 1944. Menn eru beðnir að
hlusta í hverjiun róðri á viðtæki sín í 10 mínútur
í senn á eftirtöldum tímum:
Ilrefna Ilöfrungur Ileimir Kl. 9
Fylkir Aldan Stígandi Kl. 10.30
Sjöfn Björn II. Reynir Kl. 12
Sigurfari Ægir Þorsteinn Kl. 1.30
Jakob Hermóður Ilaraldur Valur Kl. 3
Víkingur Ármann Gunnar H. Kl. 4.30
Ver Egill Vonin Kl. 6
Ásbjörn Skírnir Stathaf Kl. 7.30
44
VÍKINGUR