Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1996, Blaðsíða 22
Bjarni Sveinsson skipstjóri, stjórnarmaður í Lífeyrissjóði sjómanna, skrifar
i
sjomanna
Vegna skrifa Sigrúnar B. Ólafsdóttur
undir framangreindri fyrirsögn í síðasta
tölublaði Víkingsins er nauðsynlegt að gera
réttari grein fyrir hvernig lífeyrismálum
okkar sjómanna er raunverulega háttað. Það
getur ekki verið Sigrúnu, sjómanninum
hennar né öðrum sjómönnum til góðs að
vera uppfullir af ranghugmyndum um þessi
mál.
Nánast allir launþegar þessa lands eru
skyldaðir til að greiða í lífeyrissjóði, það er
sameignarsjóði, sambærilega við LS. í lang-
flestum tilvikum ber að greiða í ákveðinn
sjóð bundið starfsgrein. 65-67% sjómanna
greiða í LS, hinir greiða í landshlutasjóði t.d.
Líf. Vestfirðinga, Austurlands og Vest-
mannaeyja. Það er því rangt að allir sjómenn
séu skyldaðir til að greiða í LS. En sjómönn-
um ber að greiða í sameignasjóði eins og
öðrum launamönnum.
Eftirfarandi setning er úr grein Sigrúnar:
„Hafa ber margt í huga þegar ellilífeyrir er
annars vegar. Það þarf að hugsa um hvað
verður um eiginkonu og börn ef viðkomandi
fellur frá, hvort fjölskyldan geti lifað á þeim
ellilífeyri sem henni er ætlaður og svo
framvegis." Tilvitnun lýkur.
Bruðlum ekki með fé
Ellilífeyrir er eingöngu ætlaður öldruðum,
það er þeim sjóðfélögum sem ná 60 eða 65
ára aldri eftir atvikum. Eiginkona og börn fá
því ekkr ellilífeyri. Aftur á móti greiðir sjóð-
urinn makalífeyri og barnalífeyri í tilviki eins
og því sem Sigrún nefnir og geta þær bætur
orðið verulegar, jafnvel svo að mun meira er
greitt til fjölskyldunnar en maðurinn horfni
ásamt vinnuveitanda sínum höfðu náð að
greiða til sjóðsins.
Sigrún telur að margir hafi af því áhyggj-
ur hversu mikið komi til baka af því sem gre-
itt er. Hún telur mikið bruðl vera hjá
sjóðunum. Gott dæmi um það sé að Iána 90
millj. til flugfélags. Ég fúllyrði að það er ekki
bruðlað með fé hjá LS og hjá okkur sem og
langflestum sjóðum er unnið eftir ströngum
reglum um ábyrgðir fyrir lánum. Enda er
það svo að útlánatöp okkar sjóðs eru sáralítil
og það litla sem er er aðallega vegna lána til
sjóðfélaga (sjómanna).
Státum af lágum rekstrarkostnaði
Allt það fé sem inn í sjóðinn kemur mun
með vöxtum fara út úr honum aftur í formi
lífeyris. Það er öruggt því það er enginn
milliliður af neinu tagi sem hagnast á rekstri
sjóðsins. Við sjómenn og útgerðir í iandinu
eigum og rekum þennan sjóð. 3 fulltrúar sjó-
manna og 3 fulltrúar útgerða sitja saman í
stjórn. Helstu verkefni hennar eru nákvæm-
lega það að gæta þess að ekki sé „bruðlað“
með fé eins og Sigrún kallar það, sjóðurinn sé
á hverjum tíma í öruggri og góðri ávöxtun og
að jafnræði sé með höfuðstól+ókominn
iðgjöld+vexdr og svo þeim lífeyri sem lofað er
samkvæmt reglugerð sjóðsins. LS getur stá-
tað af Iágum rekstrarkostnaði og góðri ávöx-
tun og við lofum betri lífeyri en flestir aðrir
sjóðir. Það býður t.d. enginn annar sjálfbær
sjóður upp á almennan ellilífeyrisrétt 65 ára
og þeim sem hafa haft sjómennsku að ævis-
tarfi að hefja töku 60 ára. Ef eitthvað er að
hjá okkur sem berum ábyrgð á LS þá er það
að við séum hugsanlega að bjóða betri réttin-
di en við ráðum við að mati trygginga-
fræðinga og Seðlabanka sem hafa eftirlit með
rekstri lífeyrissjóða. En ég er bjartsýnn á að
okkur takist að ná 4% ávöxtun á sjóðinn því
með því getum við staðið við allar okkar
skuldbindingar.
Allianz er rekinn í ábataskyni
Nú er ég kominn þar í grein Sigrúnar þar
sem hún tekur að sér að veita sjómönnum
betri innsýn í lífeyrismálin. Það gerir hún
með því að bera saman Lífeyrissjóð sjómanna
og eftirlaunasjóð Allianz, svo ólíkir sjóðir sem
það eru. Allianz er rekinn í ábataskyni og út
úr honum getur enginn fengið meir en það
sem viðkomandi hafði greitt plús vextir, að
frádregnum rekstrarkostnaði og einhverjum
arði til hluthafa.
Eigum við að skoða dæmi. Sömu forsend-
ur eru notaðar og Sigrún notar í sínum
dæmum. Maðurinn hefur greiðslu 30 ára,
árslaun eru 3,5 milljónir og hefur greitt í
sjóðinn í 10 ár. Fellur frá og lætur eftir sig
ekkju og 3 börn, 6, 10 og 14 ára. Ekkjan
verður 85 ára og gengur ekki í hjónaband né
sambuð að nýju. Mánaðarlegur makalífeyrir
verður kr. 72.366,00 og barnalífeyrir kr.
5.397,00 med hverju barni eða samtals kr.
88.557,00 á meðan öll börnin eru 18 ára og
yngri. Heildargreiðsla yrði kr. 40.631.976,00
já þú ert að lesa þetta rétt, rúmar fjörutíu
miljónir. Inneign ekkjunar í Allianz hefði í
þessu tilviki verið kr. 4.613.000,00. Á mæltu
máli fjórar milljónir og sexhundruð þúsund.
Og það erfist.
Annað dæmi: Sami maður lifir af en
verður 100% öryrki. Þá lítur dæmið þannig
út. Örorkubætur kr. 136.690,00 á mánuði
plús barnalífeyrir kr. 5.397,00 með hverju
barni 18 ára ogyngra. Heildarörorkulífeyris-
22
Sjómannablaðið Víkingur