Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1996, Blaðsíða 20
Finnur Daníelsson skrifar um Stýrimannaskólann í Reykjavík
Féllu
fyrir hendi
morðingja
Eg var viðstaddur slit Stýri-
mannaskólans í Reykjavík
laugardaginn 25. maí 1985,
það var í fyrsta sinn sem ég
var viðstaddur skólaslit frá því
ég útskrifaðist frá skólanum á
vordögum 1935. Við skólaslitin
1985 voru samankomnir
margir eldri nemendur frá þes-
sum skóla, er numið höfðu
þau fræði sem þar eru kennd,
og síðan orðið skipstjórar á
öllum tegundum skipa, að
prófi loknu og reynslutíma.
Nú nýverið er íslenskt skip
komið úr siglingu umhverfis
hnöttinn, og að sjálfsögðu
með alíslenska áhöfn. Allir yfir-
menn þessa skips höfðu lokið
námi og prófi frá Sjómanna-
skólanum í Reykjavík; skip-
stjóri, stýrimenn, vélstjórar,
loftskeytamaður og aðrir
tæknimenn.
Hún verður nú vart í krónum
eða tölum talin sú þýðing sem
stofnun og starf þessa skóla
hefur haft fyrir hina íslensku
þjóð.
Þegar nemendur skólans
höfðu lokið prófi, þátóku þeir
til starfa sem yfirmenn skipa
og gátu sótt á hin dýpstu mið
og siglt á milli landa.
Þá jókst velmegun þjóðar-
innar með auknum skipastól
og vélvæðingu, vegna aukins
afla og siglinga með afurðir og
varning heim.
ísland, þessi litla eyja í
Norður-Atlantshafi, getur eigi
verið án skipastóls og sjó-
manna, því það er frumskilyrði
þess réttarfars og efnahags, er
hin íslenska þjóð á við að búa í
dag, sem alls staðar blasir við,
hvert sem litið er.
Skipið, sem starfsvettvangur
skipshafnarinnar, er lítill blettur
á ómælisvídd hafsins, með
öllum þess duttlungum, flest-
um vondum. Þar verður sjó-
maðurinn að vinna sín störf,
oft við erfið skilyrði, og berjast
oft þar til þrautar.
Stýrimannaskólinn hefir frá
fyrstu tíð haft á að skipa hinum
hæfustu mönnum til stjórnunar
og kennsl.u. Því hafa nemend-
ur frá þessum skóla, er lokið
hafa prófi, verið viðurkenndir til
að stjórna skipi hjá ýmsum
siglingaþjóðum. Þetta gildir að
sjálfsögðu um vélstjóra- og
aðra sérmenntun, sem þessi
skóli veitir, þ.e. Sjómannaskól-
inn.
Það voru átta nemendur er
luku prófi vorið 1935 frá
skólanum við Öldugötu. Nú er
það ég best veit fjórir lifandi.
Tveir féllu fyrir morðingjahendi
í stríðinu, þeir Gunnar Árna-
son, skipstjóri á Fróða, og Jón
Hákon Kristjánsson, er var
annar stýrimaður á Heklu.
Tómas Jochumsson og
Hermann Sigurðsson eru látn-
ir fyrir nokkrum árum. Kenn-
arar með skólastjóra voru
ellefu.
Finnur Daníelsson, Akureyri.
FISKISLÓÐ 135 B - PÓSTHÓLF 1562 - 121 REYKJAVÍK -
SÍMI 561 0020 - FAX 561 0023
VÉLAR HF.
TRELLEBORG-ÞENSLUTENGI
FYRIR RÖRALAGNIR
FYRIR SJÓ, VATN, 0LÍU 0G GUFU.
EYÐIR TITRINGI0G MINNKAR HÁVfftt
VIÐURKENNT AF ÖLLUM HELSTU
FLOKKUNARFÉLÖGUM. 2JA ÁRA ÁBYRGÐ
STÆRÐIR FRÁ
0 32 mm - 300 mm
20
Sjómannablaðið Víkingur