Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1996, Blaðsíða 74
ureyri:
Markmið að ná verkefnum
Slippstöðin hf. á Akureyri
var stofnuð árið 1952. Slipp-
stöðin hefur frá upphafi verið í
fararbroddi fyrirtækja í við-
gerðarþjónustu og nýsmíðum
fiskiskipa fyrir íslenska flotann
og hafa samtals verið smíðuð
þrjátíu stálskip hjá fyrirtækinu.
Slippstöðin er nú að rétta
við á nýjan leik eftir hið mikla
erfiðleikaskeið sem gekk yfir
íslenskan skipasmíðaiðnað á
árunum 1986 til 1993. Síðustu
tvö ár hefur verið mikið að
gera í stöðinni og útlitið
framundan er mjög gott.
Innan fyrirtækisins er nú
verið að taka á ýmsum málum
sem ekki var hægt að sinna á
meðan erfiðleikar steðjuðu að
rekstrinum, þ.á m. eru tals-
verðar fjárfestingar í tækjum
og búnaði, miklar endurbætur
á húsnæði fyrirtækisins og
átak er verið að gera í þjálfun
og endurmenntun starfs-
manna. M.a. hafa nú verið
teknir inn fimmtán nemar í
stálsmíði og vélvirkjun, en
nemar voru ekki teknir inn hjá
fyrirtækinu í átta ár meðan
verst gekk.
Engar nýsmíðar skipa fara
fram nú sem stendur, en meg-
inviðfangsefni fyrirtækisins er
viðgerðarþjónusta við skip og
smíði og uppsetning á ryð-
fríum búnaði. Fyrirtækið er í
fararbroddi í smíði og upp-
setningu á fiskvinnslubúnaði
um borð í frystiskipum og hef-
ur unnið að mörgum slíkum
verkefnum undanfarin misseri.
Þar má nefna vinnslulínu fyrir
lýsing í þýska togarann Hann-
over, rækju- og bolfisklínu í
Eyborgu EA, vinnslulínu (
Frosta ÞH og þýska togarann
Cuxhaven.
Mikil umsvif hafa verið í al-
mennum skipaviðgerðum
undanfarin misseri og Ijóst að
verkefnastaða skipaiðnaðar-
fyrirtækja endurspeglar af-
komu og árferði í útgerðinni.
Samkeppnisstaða íslenskra
skipaiðnaðarfyrirtækja gagn-
vart erlendum keppinautum
hefur batnað verulega og
stærri og stærri verkefni eru að
flytjast inn í landið. Það er þó
enn svo að nýsmíðarnar og
stærri viðgerðarverkefni fyrir
íslenska aðila eru unnin er-
lendis, en þar er markmið
Slippstöðvarinnar, til lengri
tíma, að ná þessum verkefnum
aftur inn í landið. Hjá fyrirtæk-
inu starfa nú um 160 manns
og er útlit fyrir að ekki verði
fækkun á þeim starfsmanna-
fjölda á komandi mánuðum.
Sparisjóður vélstjóra:
Greiðsluþjónusta
Langflestir vilja hafa góða
yfirsýn yfir fjármálin og að þau
séu (góðri reglu. Það er hins
vegar stundum munur á raun-
veruleikanum og því sem
menn vilja, fjármálin eiga það
til að verða flókin, gluggapós-
tur er hvimleiður og gleymdur
gjalddagi getur fyrirvaralaust
skotið upp kollinum. Því er
öryggi í fjármálum fjölskyldu
þinnar mikilvæg forsenda
þess að hún geti áhyggjuiaus
notið iífsins.
Greiðsluþjónusta Spari-
sjóðs vélstjóra er þægileg og
örugg leið til að ná jafnvægi í
fjármálum þínum og heimilis-
ins. Greiðsluþjónustan hefur
það að markmiði að létta þér
fjármálavafstrið, m.a. með því
að tryggja skilvísa greiðslu
reikninga, gluggabréfin heyra
sögunni til og þú hefur mun
betra yfirlit yfir fjármálin. Þetta
leiðir ailt að meiri skilvísi,
tímasparnaði, öryggi og aukn-
um þægindum í fjármálum.
Mismunandi möguleikar
greiðsluþjónstunnar gera það
að verkum að þú getur valið
hvað hentar þér og þínum,
t.d. greiðsludreifing, stakar
greiðslur eða greiðslujöfnun.
Með greiðsludreifingu gerir
þú samning við sparisjóðinn
um þá reikninga sem þú vilt
að hann sjái um að greiða.
Þjónustufulltrúar okkar gera
greiðsluáætlun yfir árið og
greiðslum er jafnað niður á
tólf mánaða tímabil.
Þjónustufulltrúinn sér síðan
um að millifæra út af
launareikningi þínum inn á þar
til gerðan greiðslureikning og
annast greiðslur á öllum
reikningum sem berast til
hans. Þar með er mestallur
gluggapóstur úr sögunni. Með
stökum greiðslum getur þú
látið okkur annast greiðslur
einstakra reikninga s.s.
hitaveitu-, fjölmiðla- og raf-
magnsreikninga á meðan þú
ert í sumarfríi eða vegna
tímabundinnarfjarveru. Þegar
greiðslubyrði er mismunandi
eftir mánuðum hentar
greiðslujöfnun vel, en hún er
þannig hugsuð að ef greiðslur
einstakra mánaða eru hærri
en inneign á greiðslu-
reikningnum færðu yfirdráttar-
heimild á reikninginn og þan-
nig aðstoðum við þig að
komast yfir erfiðustu mán-
uðina. Sérstakur þjónustufull-
trúi okkar sér svo um að þú
fáir persónulega þjónustu og
ráðgjöf, auk þess ef þú færð
þér heimabankann geturðu
sjálfur fylgst með hreyfingum
á reikningnum þínum og
prentað út yfirlit.
Einn stærsti kosturinn við
að nýta sér greiðsluþjónustu
Sparisjóðs vélstjóra er að þú
sýnir ekki bara fyrirhyggju í
fjármálum, heldurfærðu iíka
góða ávöxtun af innstæðu
þinni á greiðslureikningnum ef
um greiðslujöfnun er að ræða.
Þú færð því bæði góða ávöxt-
un á skammtímasparnað og
losnar við vanskilavexti.
Greiðsluþjónustan er án efa
allra þægilegasta og besta
leiðin sem fólki býðst til að
einfalda fjármálavafstrið og ná
betri yfirsýn yfir fjármálin.
Kynntu þér greiðsluþjónustu
okkar á næsta afgreiðslustað
Sparisjóðs vélstjóra, við
munum taka vel á móti þér.
74
Sjómannablaðið Víkingur