Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1996, Blaðsíða 55
hafa stjórnvöld ekki enn hirt um aö gefa út
þær reglur sem samþykktin áskilur. Hér er
um að ræða vaktreglur, reglur um háseta
sem gegna varðstöðu í brú á kaupskipum,
reglur um bátsformenn björgunarfara á
kaupskipum, reglur um þjálfun skipstjóra,
annarra yfirmanna og undirmanna á olíu-
og efnaflutningaskipum og reglur um
endurnýjun atvinnuskírteina skipstjórnar-
manna. Það skal þó tekið fram að e.t.v. má
líta svo á að 7. grein í reglugerð um atvin-
nuskírteini skipstjórnar- og vélstjórnar-
manna uppfýlli ákvæði samþykktarinnar um
endurnýjun atvinnuskírteina. Hins vegar
hefur ekkert verið gert til að skipuleggja
námskeið, sem tengjast framangreindum
reglum, eins og nauðsynlegt er fyrir þá sem
ekki hafa tilskilinn siglingatíma þ.e. tólf
mánuði á síðustu fimm árum.
Fækkun farmanna
Formannaráðstefna Farmanna- og fiski-
mannasambands Islands, haldin á Akureyri
27.-29. nóvember 1996, styður eindregið
ályktun félagsfúndar Stýrimannafélags
íslands, dags. 23.10.1996, og gerir hana að
sinni.
Félagsfúndur í Stýrimannafélagi íslands -
stéttarfélagi stýrimanna á kaupskipum og
varðskipum - haldinn 23. október 1996,
lýsir yfir áhyggjum sínum af sífækkandi
störfum íslenskra farmanna á undanförnum
árum, sem mun að óbreyttu leiða til að
hætta verði á að íslensk farmannastétt heyri
sögunni til að nokkrum árum liðnum.
I þessu sambandi bendir fundurinn á að
frá janúar 1990 hefir stöðugildum íslenskra
farmanna á skipum, í rekstri hjá útgerðum
innan Sambands íslenskra kaupskipaút-
gerða, fækkað úr 375 í 198 eða um 177
stöðugildi. Það jafngildir því að ársstörfúm
íslenskra farmanna hafi fækkað um 266 eða
50%.
Til að snúa þessari óheillaþróun við krefst
fúndurinn þess að stjórnvöld geri þær ráð-
stafanir, sem með þarf, svo útgerðir farskipa
verði samkeppnisfærar á alþjóðlegum flutn-
ingamarkaði. I þessu sambandi bendir fund-
urinn á að allar Norðurlandaþjóðirnar nema
íslendingar hafa í einhverju formi beitt
skattalegum aðgerðum til að tryggja farmön-
num sínum störf til frambúðar. Fundurinn
heitir á alla aðila, bæði stéttarfélög og út-
gerðir, sem hagsmuna eiga að gæta, að taka
höndum saman og vinna að þessu málefni í
órofa samstöðu.
Fundurinn mótmælir því harðlega að
útlend skip með útlendum áhöfnum skuli
árum saman stunda áætlunarsiglingar til og
frá íslandi á vegum íslenskra skipafélaga.
Formannaráðstefnan vísar til fýrri
samþykkta þinga FFSÍ um atvinnumál far-
manna. Ennfremur beinir ráðstefnan því til
FFSl að beitt verði öllum tiltækum ráðum
til að fjölga störfum íslenskra farmanna.
Kjör yfirmanna á
KAUP- OG VARÐSKIPUM
Formannaráðstefna Farmanna- og fiski-
mannasambands Islands, haldin á Akureyri
27.-29. nóvember 1996, vekur athygli á
þeirn launamun sem fram kemur í kjara-
könnun starfsmanna á skipum Landhelgis-
gæslunnar. Þar er svo komið að stöður
undirmanna eru betur launaðar en sumar
stöður yfirmanna. Þetta óhagstæða launabil
á einnig við gagnvart yfirmönnum á kaup-
skipum. Ráðstefnan hvetur til þess að í yfir-
standandi kjaraviðræðum verði áhersla lögð
á að skapa eðlilegt Iaunabil milli stéttanna á
kaupskipum og varðskipum í samræmi við
menntun þeirra og ábyrgð.
Hækkun fastra launa
Formannaráðstefha Farmanna- og fiski-
mannasambands íslands, haldin á Akureyri
27.-29. nóvember 1996, hvetur samninga-
nefnd farmanna til að standa fast á kröftim
stéttarfélaganna þar sem höfúðáhersla verði
lögð á hækkun fastra launa. Ráðstefnan varar
við hugmyndum samtaka vinnuveitenda um
vinnustaðasamninga eins og þær hafá verið
settar fram. Ráðstefnan beinir því jafnframt til
samninganefhdar farmanna innan FFSÍ að
settar verði fram kröfúr um verulega hækkun
á slysa- og örorkubótum sjómanna.
Rannsóknarnefnd sjóslysa
Formannaráðstefna Farmanna- og fiski-
mannasambands Islands, haldin á Akureyri
27.-29. nóvember 1996, telur að starf Rann-
sóknarnefndar sjóslysa sé fjarri því sem eðli-
legt geti talist og beinir þeim tilmælum til
samgönguráðherra að hann beiti sér nú
þegar fýrir úrbótum, svo starf nefndarinnar
megi verða trúverðugt og markvisst í fram-
tíðinni og þjóni þar með þeim tilgangi sem
henni var ætlað.
Greinargerð: Á undanförnum árum hafa
skýrslur nefndarinnar komið út mörgum ár-
um eftir að atburðir sem fjallað er um hafa
gerst. I sumum tilfellum hafa nokkur ár
verið dregin saman í eina skýrslu. Ef niður-
stöður nefndarinnar varðandi einstök slys
eiga að koma að gagni er nauðsynlegt að
flokka slysin, þannig að þegar alvarlegustu
slysin verða fari rannsókn fram svo fljótt
sem nokkur kostur er og niðurstaða
nefndarinnar gerð kunn strax að því loknu.
Eggert Eggertsson bryti og Reynir Björnsson loftskeytamaður.
Sjómannablaðið Víkingur
55