Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1996, Blaðsíða 56
Nýtt hafrannsóknaskip
Formannaráðstefna Farmanna- og fiski-
mannasambands íslands, haldin á Akureyri
27.-29. nóvember 1996, fagnar framkomn-
um yfirlýsingum sjávarútvegsráðherra um
kaup á nýju hafrannsóknaskipi og nefndar-
skipun dómsmálaráðherra varðandi endur-
nýjun varðskipa, en ítrekar íyrri ábendingar
um að kannað verði hvort ekki geti reynst
hagkvæmara að fjárfesta í einu vel búnu
skipi sem þjónað gæti báðum verkefnunum.
Hafnarráð
Formannaráðstefna Farmanna- og fiski-
mannasambands íslands, haldin á Akureyri
27.-29. nóvember 1996, telur með öllu
óviðunandi að í Hafnarráði sitji enginn full-
trúi notenda hafnanna og skorar á sam-
gönguráðherra að bæta hér úr.
Greinargerð: Samkvæmt lögum um
Siglingastofnun íslands skipar samgöngu-
ráðherra Hafnarráð sér til ráðuneytis um
hafnamál og sigiingaráð sér til ráðuneytis
um siglinga- og vitamál. í Hafnarráði skulu
eiga sæti fimm fulltrúar og í siglingaráði
ellefu fulltrúar. 1 Hafnarráði er ekki gert ráð
fyrir að notendur hafnanna og þar með
greiðendur þeirrar þjónustu sem þær láta í té
eigi
fulltrúa. Ur þessu þarf að bæta og mætti
hugsa sér í því sambandi að sameina þessi
tvö ráð í eitt sbr. bókun fráfarandi vita-
nefndar.
Lífyeyrissjóður sjómanna
Formannaráðstefna Farmanna- og fiski-
mannasambands íslands, haldin á Akureyri
27.-29. nóvember 1996, skorar á stjórn
Lífeyrissjóðs sjómanna að taka saman þær
upplýsingar sem tiltækar eru varðandi skuld-
bindingar sem fyrri 60 ára regla hefði í för
með sér.
Strandstöðvar Pósts og síma
Formannaráðstefna Farmanna- og fiski-
mannasambands Islands, haldin á Akureyri
27.-29. nóvember 1996, mótmælir harðleg:
öllum áformum um breytingu á rekstri á
strandstöðvum Pósts og síma ef þær hafa í
för með sér skerta þjónustu við sæfarendur.
Afnám óhefts framsals
Formannaráðstefna Farmanna- og fiski-
mannasambands Islands, haldin á Akureyri
27.-29. nóvember 1996, beinirþeim tilmæl-
um til alþingismanna að styðja lagafrumvarp
þingmannanna Guðmundar Hallvarðssonr
og Guðjóns Guðmundssonar um afnám
frjáls og óhefts framsals á veiðiheimildum ef
ekki er um svokölluð jöfn skipti að ræða.
Greinargerð: Það ófremdarástand sem
ríkt hefur vegna sinnuleysis stjórnvalda um
að sníða verstu agnúa af kvótakerfmu, og
leitt hefur til þess að sjómenn eru í sífellt
meira mæli nauðbeygðir til þátttöku í
kaupum og leigu á aflaheimildum, hefur
verið og er enn með öllu óásættanlegt. Á
meðan þetta ástand varir er útilokað að
starfsfriður verði innan fiskveiðigreinarinn-
ar. Þetta neyðarástand er nú orðið svo fyrir-
ferðarmikið innan greinarinnar að jafnvel
hörðustu stuðningsmenn kvótakerfisins í
núverandi mynd viðurkenna vandann og að
á honum verði að taka. Það verður best gert
með þeim hætti sem frumvarpið gerir ráð
fyrir.
Úreldingarreglur fiskiskipa
Formannaráðstefna Farmanna- og fiski-
mannasambands íslands, haldin á Akureyri
27.-29. nóvember 1996, leggur til að núver-
andi reglur um úreldingu fiskiskipa verði
afnumdar.
Greinargerð: Þær reglur sem undanfarið
hafa gilt varðandi úreldingu fiskiskipa hafa
verið til óþurftar og komið í veg fyrir nauð-
synlega endurnýjun flotans og þar með
bætta starfsaðstöðu sjómanna.
Hvalveiðar
Formannaráðstefna Farmanna- og fiski-
mannasambands íslands, haldin á Akureyri
27.-29. nóvember 1996, skorar á stjórnvöld
að taka nú þegar af skarið þannig að hval-
veiðar geti hafist að nýju af fullum krafti
þegar á næsta ári.
Greinargerð: Þegar hvalveiðar hefjast að
nýju verður þeim sem þær ætla að stunda að
vera sú heimild ljós með góðum fyrirvara
svo undirbúningur veiðanna geti verið með
eðlilegum hætti. Því er afar mikilvægt að
ákvarðanataka í málinu dragist ekki á
langinn.
Varar við veiðileyfagjaldi
Formannaráðstefna Farmanna- og fiski-
mannasambands Islands, haldin á Akureyri
27.-29. nóvember 1996, varar við fram-
komnum hugmyndum um veiðileyfagjald.
Greinargerð: Næsta öruggt má telja að
opinbert veiðileyfagjald mundi koma sem
viðbót við þann kostnað sem óheft framsal
veiðiheimilda hefur nú þegar í för með sér
og ekkert bendir til annars en ósvífnar
útgerðir myndu koma þeim kostnaði með
einum eða öðrum hætti yfir á áhafnir sínar.
Undrun á orðum ráðherra
Formannaráðstefna Farmanna- og fiski-
mannasambands íslands, haldin á Akureyri
27.-29. nóvember 1996, lýsir undrun og
áhyggjum vegna ummæla sjávarútvegsráð-
herra við setningu Fiskiþings 20. nóvember
síðastliðinn, þar sem ráðherrann lýsti skip-
stjórnar- og útgerðarmönnum sem sviku-
rum við íslensku þjóðina í bráð og lengd
vegna frákasts á fiski, í stað þess að taka á
þeim vanda sem fylgir núverandi kerfi um
stjórn fiskveiða óbreyttu.
Sjómannaafsláttur
Formannaráðstefna Farmanna- og fiski-
mannasambands íslands, haldin á Akureyri
27.-29. nóvember 1996, varar við öllum
hugmyndum um skerðingu á sjómanna-
afslætti. Komi til að stjórnvöld beiti sér fyrir
umræddri skerðingu eru þau einhliða að
ganga á kjör sjómanna. Sjómannaafsláttur er
órjúfanlegur hluti af kjörum sjómanna, sem
meðal annars hefur komist á fyrir atbeina
ríkisvaldsins.
Fundarmennirnir Bjarni Sveinsson, Högni Skaftason, Hafþór Eide og Sæmundur Hafþórsson.
56
SJÓMANNABLAÐIÐ VÍKINGUR