Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1996, Blaðsíða 52
„Það þarf ekki endilega að vera vegna
komandi kjarasamninga sem kvótabraskið
kemur til kasta Alþingis, það mun koma þan-
gað hvort eð er. Hvað minn þingflokk
áhærir, í framhaldi af flokksþingi okkar þar
sem við lögðum í umræðu um þetta, sem
ekki allir aðrir gerðu, erum við byrjuð vinnu.
Við höfum fengið aðila frá ólíkum hags-
munaaðilum í sjávarútvegi til fundar með
nokkrum þingmönnum Framsóknarflokks-
ins til að kortleggja stöðuna með það í huga
að vinna á aðalvandanum, sem er svokallað
kvótabrask og úrkast á fiski. Það hafa komið
fram ýmsar hugmyndir og við erum að kort-
leggja málið til að geta komið með lausnir,“
sagði HjáLMAR ÁRNASON, alþingismaður fyrir
Framsóknarflokk, þegar hann var spurður
hvort hann gerði ráð fyrir að til kasta Alþingis
þyrfti að koma til að ná ásættanlegri niður-
stöðu fyrir sjómenn samhliða komandi kjara-
samningum í baráttunni gegn kvótabraskinu
og að allur fiskur verði seldur á markaði.
„Við byrjuðum þessa vinnu strax eftir
flokksþingið og höfum þegar haldið fjóra
fundi, með fjórum ólíkum aðilum, og mun-
um halda áfram á næstu dögum. Þetta eru
okkar fyrstu skref, en allt tekur þetta sinn
tíma.“
Heyrist þér vilji innan þíns þingflokks að
taka á því meini sem kvótabraskiS er?
„Það var niðurstaða flokksþingsins að það
verði að taka á þessu meini, skilgreina það og
taka á því. Það er eitt af okkar
meginmarkmiðum.“
Má skilja þigþannig að sjómenn séu, íþeir-
ri löngu og hörðu baráttu sem þeir hafa átt í
gegn kvótabraskinu, að eignast bandamenn þar
sem þingmenn Framsóknarflokksins eru?
„Þeir hafa löngum átt okkur að. Eftir sjö
tíma sjávarútvegsmálaumræðu á flokksþing-
inu fengum við skýr skilaboð um að á þessu
þyrfti að taka, ekki síst vegna sjómanna.“
Geturðu tekið
undir að þing-
menn séu opnari
jyrir umrœðu um
þetta vandamál en
þeir voru ekki alls
fyrir löngu?
„Ég held að það
sé rétt mat.“
Nú er komin
fram tillaga fyrir
Alþingi um að
allur fiskur fari á
markað, hver er
afitaða ykkar í því
máli?
„Það er eitt af
þeim málum sem
við höfum rætt í
tengslum við
þetta.“ V
LJÓSAFELL SU 70
í i
52
Sjómannablaðið Víkingur