Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1996, Blaðsíða 7
Ólafur Ólafsson landlæknir
Dettur
einhverjum í hug
að vökulög
séu haldin?
„Það eru engin vökulög.
Menn eru útkeyrðir og þreyttir
og það er greinilegt að sjó-
mönnum er misboðið. Ég veit
ekki hvað á að gera til að vekja
frekari athygli á þessu. Ég hef
sent öllum dagblöðum og
vikublöðum þetta en það birtir
það enginn. Hvers vegna?
spyr ég. Það er helst að Tim-
inn geri það, hann er jú land-
búnaðarblað," sagði Ólafur
Ólafsson um orsakir slysa á
sjómönnum, en eins og kemur
fram í máli landlæknis hefur
hann mestar áhyggjur af
hversu stopul hvíld sjómanna
er.
„Það er verið að misbjóða
íslenskum sjómönnum. Það
hefur verið borin saman dánar-
tíðni íslenskra sjómanna og
sjómanna á öðrum Norður-
löndum, munurinn er hrikaleg-
ur. Hún er miklu hærri hér, en
svo virðist sem enginn þori að
segja frá því. Þær tölur sem ég
er með eru birtar í opinberum
læknaskýrslum.
Ég hef verið á um sautján
stöðum úti á landi - þóst vera
læknir til að létta mér lífið á
þessari skrifstofu sem drepur
alla - og þar hef ég séð þetta.
Það er algengt að menn stundi
sjó það hart að þeir fara
snemma á morgnana og koma
seint á kvöldin, það tekur því
ekki fyrir þá að fara heim að
sofa þar sem svefntíminn er
það stuttur. Þessir menn fara
kannski bara heim um helgar,
þó er göngufæri heim til þeirra.
Dettur einhverjum í hug að
vökulög séu haldin?“
Nú bíða menn eftir að vinnu-
tilskipun Evrópusambandsins
verði lögfest hér á landi...
„Já, hugsaðu þér. Þingmenn
hér á landi taka andköf. Það
eru tvær þjóðir sem berjast
gegn þessu; við og Bretar. Ég
var á fundi með læknum.
Meðal þeirra er dæmi um að
þeir vinni í heilan sólarhring.
íslendingar og Bretar skera sig
úr varðandi hvað læknar vinna
mikið, sérstaklega aðstoðar-
læknar. Það er merkilegt að
það er búið að sanna vísin-
dalega að ungur læknir dó
vegna of mikillar vinnu. Þetta
gerðist í Bretlandi fyrir um ári.
Ungi læknirinn hné niður og
dó. Þegar þetta var kannað
kom í Ijós að síðustu vikurnar
hafði hann unnið 120 tíma á
viku. Við rannsókn kom í Ijós
að vissir vefir líkamans voru
tæmdir. Hann fékk dánaror-
sökina ofþreyta og ofvinna."
Það er ekki bara hægt að
benda á að betur megi gera, er
ekki hægt að benda á einhverj-
arlausnir, til dæmis hvað
varðar sjómenn?
„Meiri hvíld. Auðvitað þéna
menn meira eftir því sem þeir
vinna meira. Það eru of fáir á
skipunum. Þar bera allir sök;
útgerð, skipstjórinn og há-
setarnir. Þetta minnir mig á
stúlkurnar í Vestmannaeyjum
sem vildu meiri og meiri
yfirvinnu. Það verður að ræða
þetta mál, þessir menn fara á
heilsu með þessu háttalagi."
__________við drukknun
Dánartíðni pr. 100 þús. íbúa af völdum sjó- og
á Norðurlöndum 1980-1989
Hafnarbraut 25 • 200 Kópavogur
Sími 554 0000 • Fax 554 4167
Hvort sem þú kallar
þau Klaka-, teygju-
eða teleskópbönd,
þá eru útdraganlegu
færiböndin frá
KLAKA „draumur
í dós“. Hægt er að
setja fisk og ís beint
í fiskkör í öllum
hornum lestarinnar. Böndin eru snúanleg 360 gráður
og geta flutt uppí- og niðrímóti
• Bætir meðferðina á fiskinum verulega
• Meiri afköst nást
• Gjörbylting á vinnubrögðum í lestinni.
Böndin eru úr rafbrynjuðu sjóþolnu áli. Þau eru knúin
tromlumótor 0,55 kW, 0,32 m/s. Þau ná frá 2,7 til 4,8
metrum frá upphengju, sem getur verið endi á færan-
legu bandi í lestarlofti eða festing beint undir lúgu.
Styttri útgáfa fáanleg.
\mm\
SJÓMANNABLAÐIÐ VfKINGUR
7