Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1996, Blaðsíða 24
Fiskvinnslu- og sjómannskonan Kristín Ottesen skellti sér einn túr
með Sigli í Smuguna í sumar. Veiðiferðin tók í allt 66 daga.
/
I þessari ferð voru alls sex konur sem fylgdu mönnum sínum í vinnuna!
Framan af fiskaðist heldur illa og fyrstu
fimm vikurnar var túrinn eins og aðgerðar-
Iaust sumarleyfi við ysta haf. Heldur voru
sumir í áhöfninni orðnir vondaufir um fiskirí
þegar afli glæddist og ástandið lagaðist.
Saman höfðu Kristín Ottesen og eigin-
maður hennar, Þorleifur Elíasson, sem
svarar skipstjórahiut upp úr krafsinu. Hún
fékk um 500 þúsund í heildarlaun og þegar
allt hafði verið dregið frá fékk hún 300
þúsund í vasann, sem getur varla talist ein-
hver ósköp eftir níu vikna úthald. Sjálf segist
hún vel við una því ekki hefði hún unnið sér
þessa peninga inn í landi. Fyrir fjögurra tíma
vinnu á dag í fiskvinnslu hefur hún um sex
þúsund útborgaðar á viku.
,Afþví við vorum bæði í túrnum komum
við ágætlega út úr þessu. Ef hann hefði verið
einn með þessa upphæð eftir allan þennan
tíma hefði það verið verra. Smuguveiðin
brást algjörlega í sumar og fyrir þá sem Iitu á
túr í Smuguna sem happdrætti hafa von-
brigðin verið mikil. Við hugsuðum stórt í
byrjun og bjuggumst við 80 milljóna króna
túr. Svo fórum við að sætta okkur við 70 eða
jafnvel 60 milljónir. Að endingu gerði níu
vikna veiðiferð 47 milljónir í aflaverðmæti.
fil samanburðar má nefna að Siglir kom í
nóvemberlok úr átta vikna veiðiferð með
aflaverðmæti upp á níu milljónir. Það telst
gott ef þeir eiga fyrir sjoppureikningum
þegar allt er gert upp.“
Við konurnar samankomnar, ég er lengst til hægri, þá Systa, Esther, Didda
og messinn okkar, hún Anna.
VORUM FLESTAR SJÓVEIKAR FRAMAN AF
Kristín segir að hópurinn hafi verið góður
og veður gott. Þó var hún sjóveik fyrsta hálfa
sólarhringinn. Þá var hún rifin út á dekk til
að hressa sig við, því enginn verður sjóhraust-
ur í koju.
„Við eiginkonurnar vorum flestar sjóveik-
ar framan af og mennirnir voru orðnir ansi
þreyttir á að hittast á klósettinu með æluföt-
urnar. Siglir er frekar stórt og vel búið skip og
því fann ég ekki fyrir neinni vanlíðan um
borð. Reyndar er ég frekar félagslynd í eðli
mínu og leiddist aldrei,“ segir Kristín.
Hún á tvo syni, Atla Frey 10 ára og
Gunnar Frey 4 ára. Var ekki erfitt að skilja
börnin eftir heima?
„Vissulega, en ég vissi af þeim í góðum
höndurn hjá fjölskyldunni. Þeim þótti þetta
bara spennandi í byrjun að fara til Reykjavík-
ur og eyða þar sumrinu, en þegar síga tók i
24
Sjómannablaðið Víkingur