Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2006, Side 38

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2006, Side 38
Fjöltækniskóli íslands varð til 24. febr- úar 2005 þegar nöfnum Vélskóla ís- lands og Stýrimannaskólans í Reykjavík var formlega breytt í Fjöltækniskóla ís- lands. Segja má að afhjúpun menntamálaráð- herra á nýju nafni skólans hafi verið end- anleg sameining skólanna og lok ferils sameiningar er hófst með yfirtöku Menntafélagsins á rekstri skólanna 1. á- gúst 2003. Nafni Menntafélagsins var á sama tíma breytt í Fjöltækniskóla íslands ehf. og er með því einungis eitt nafn, Fjöltækniskóli íslands, notað um alla starfsemina. Skólinn hefur með nýju nafni markað sér braut og stefnir að þróun námsfram- boðs og aukinna tækifæra undir nýju nafni án þess þó að minnka áhersluna á skipstjórnar- og vélstjórnarnám sem byggt hefur verið upp í skólanum í áraraðir. Skóli getur þróast og eflst með nýjum áherslum samhliða því að virða gamlar hefðir og halda því sem vel hefur verið gert í gegnum tíðina. Nýjar áherslur geta og eiga að stuðla að eflingu þeirra grunn- greina sem skólinn hefur byggt á og eiga að gefa nemendum skólans tækifæri til menntunar í samræmi við þær kröfur sem nútíminn gerir til þeirra starfa sem stefnt er á. Skipulag Fjöltækniskóla íslands I skólanum eru 4 námssvið: Tækni-, Vélstjórnar-, Skipstjórnar- og Sjávarút- vegssvið. Skólinn starfar eftir áfangakerfi sem gerir honum kleift að meta nám frá öðrum skólum. Námsefninu er skipt upp i áfanga sem hver um sig tekur eina önn og lýkur með prófi í annarlok. Áfanga- kerfið er þess eðlis að það leggur nem- endum nokkrar byrðar á herðar, þeir verða sjálfir að ákveða námshraða og velja sér viðfangsefni fyrir hverja önn. Til að auðvelda þetta er nauðsynlegt að þeir geri áætlun um námsferil sinn og niður- röðun einstakra áfanga í námsannir í samráði við umsjónarkennara sinn eða námsráðgjafa. Rekstur og Stjórnun í atvinnulíf- inu Fjöltækniskóli íslands hefur fengið heimild menntamálaráðuneytisins að bjóða nám á nýrri braut; sjávarútvegs- braut. Vandasamt var að ákveða með hvaða hætti Fjöltækniskólinn tnyndi leggja upp nýtt nám þannig að það væri aðlaðandi og markvisst fyrir þá sem hefðu hug til þess að stunda námið. Eftir töluverða yfirlegu var það niður- staða skólans að skipuleggja og bjóða nýtt nám sem við köllum Rekstur og stjórnun í atvinnulífinu. Þetta nám er skilgreint sem 45 eininga rekstrar- og stjórnunamám. Námið hentar vel öllum faglærðum sem hafa reynslu úr atvinnu- lífinu t.d. sjávarútvegi, matvælaiðnaði og ýmsum öðrum atvinnugreinum og gerir námið sömu námskröfur og á háskóla- stigi. Þetta nýja nám er hentugt fyrir þá sem vilja auka við menntun sína og skapa sér ný tækifæri án þess að þurfa að sleppa vinnu sinni og setjast að fullu á skóla- bekk. Námið er að því leytinu frábrugðið venjulegu skólanámi að auðvelt er að stunda það á eigin forsendum. Skipulag námsins er blanda af fjarnámi og staðnámi sem býður nemendum upp á mikinn sveigjanleika í skipulagi náms og vinnu. Námsskipulagið er þannig: • Við upphaf annar koma nemendur í skólann í þrjá daga og fá kynningu á náminu og fyrirkomulagi þess, læra á Námskjá sem er veflægt námsumsjón- arkerfi, fara í gegn unr námstækni og kynnast hver öðrum. • Aðeins einn áfangi er í gangi hverju sinni, hann tekur 6 vikur og lýkur síð- an með prófi. • í hverjum áfanga er gert ráð fyrir tveimur lotunr í skólanum sem taka 3 daga hvor.. Stofnun þessarar nýju brautar er liður í þeirri stefnu Fjöltækniskólans að þróa nám tengt atvinnulífinu til viðbótar við það hefðbundna nám sem fram hefur far- ið í skólanum. Stúdent af Náttúrufræðibraut Fjöltækniskóli íslands býður nám á nýju tæknisviði; náltúrufræðibraut sem kemur til með að gegna lykilhlutverki í þróun og vexti skólans. Nárnið er bæði verklegt og bóklegt og gagnast nemend- um sem starfsnám, sem leiðir til atvinnu. Að auki veitir það stúdentspróf af nátt- úrufræðibraut og þar með réttindi til á- framhaldandi náms. í fyrstu er boðið upp á vél-, raf- eða skipstækni innan náttúrufræðibrautar þar sem nemendur slunda nám til undir- búnings raungreinanámi í háskóla. Nám- ið er sérsniðið að þörfum háskólanna með blöndu af bóklegum greinum og tæknigreinum. Stefnt er að því að nem- endur geti útskrifast með vélstjórnarpróf 2. stigs, samhliða stúdentsprófi af nátt- úrufræðibraut. Sérstök áhersla verður lögð á undirbúning undir háskólanám í tækni- og verkfræði. Fram til þessa hafa flestir nemendur úr grunnskóla valið að fara í framhaldsskóla Skólanámið Stúdent Náttúrufræðibraut - Raftækni - Véltækni - Skipstækni l.ár, 2annjr e 2.ár, 4annir Z i 3.a,,6am, i 4.ár, 8annir Stúdentspróf =þ Eftir 4 annir er hægt að útskrifast með annaðhvort 1. sbg ekipstjómar eða 2. stig vélstjómar. Alþjóðteg atvkmuróttindi lást með siglingatíma _____ Rétlindi Skipstjómarréttindi á fiskiskipum ailt að 200 rúmlestir Yfirvólstjóri á skipum með altt aö 750 KWaðatvói o M !f C E - 3 ~ C flf Ví u) 3 Stúdent Náttúrufri Fjölbreytt framhaldsnám á háskólastigi 38 - Sjómannablaðið Víkingur

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.