Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2006, Blaðsíða 44
Skagfirska uppsvei
Þróunarsetur Hólaskóla stofnað á Sai
sveiflan!
Sauðárkróki
Ifeb*.
laiHiaiHil Ihs■
Ný aðstaða til rannsókna og kennslu á sviði fiskeldis, fiskaliffrœði og inatvœlavinnslu.
róunarsetur Hólaskóla - Háskólans á
Hólum var stofnað þann 7. mars
síðastliðinn við höfnina á Sauðárkróki.
Þróunarsetrið er staðsett í Verinu, sem er
rannsókna- og kennsluaðstaða sem Há-
skólinn á Hólum og FISK Seafood hafa
komið upp. Þróunarsetrinu er ætlað að
stuðla að fjölbreyttum rannsóknum á
sviði fiskeldis, fiskalíffræði, matvæla-
vinnslu og fleiri greinum. Þróunarsetrið er
samstarfsverkefni Rannsóknastofnunar
fiskiðnaðarins, Háskóla íslands og Há-
skólans á Akureyri. Gert er ráð fyrir þvi
að fleiri aðilar komi í framtíðinni að Þró-
unarsetrinu. Starfsemi Þróunarsetursins
verður fjármögnuð með rannsóknastyrkj-
um og framlögum þeirra stofnana sem að
verkefninu standa. Rannsóknastyrkir og
ýmsar sértekjur vegna rannsókna- og þró-
unarverkefna, sem þegar eru hafin í Þró-
unarsetrinu, nema um 40-50 milljónum
króna á ári og skólarnir greiða fyrir afnot
af kennsluaðstöðu i samræmi við notkun.
Einnig leggja sjávarútvegs- og iðnaðar-
ráðuneytið fram 6 milljónir á ári til þess
að fjármagna störf rekstrarstjóra og stjórn-
un setursins. Það er því ljóst að starfsemin
stendur þegar á traustum grunni.
Um leið og þróunarsetrið var opnað
var tilkynnt að þar verði sett upp
próteinverksmiðja sem er tilraunaverk-
efni í samstarfi FISK, Rannsóknastofnun-
ar fiskiðnaðarins og Háskólans á Hólum.
Próteinverksmiðjan mun nýta afskurð og
annað sem fellur til í fiskvinnslu til þess
að framleiða próteinþykkni. Prótein-
þykknið má siðan nýta á ýmsa vegu bæði
við vinnslu fiskafurða og t.d. sem bæti-
efni fyrir íþróttafólk. Þegar hefur verið
aflað styrkja til verkefnisins.
í Verinu hefur verið byggð upp afar
fullkomin aðstaða til fiskeldis- og fiska-
líffræðirannsókna sem jafnast á við það
besta sem þekkist í heiminum. Þar er
einnig kennsluaðstaða fiskeldis- og fiska-
líffræðideildar Háskólans á Hólum. Fjöl-
rnörg rannsóknaverkefni eru þegar hafin
í Þróunarsetrinu sem tengjast m.a. fóður-
þörf bleikju og þorsks, eldi á lúðu auk
fjölbreyttra rannsókna á þróunarvistfræði
fiska. Þróunarsetrið mun taka virkan þátt
í uppbyggingu fiskeldis á íslandi, enda er
ljóst að öflug rannsókna- og þróunar-
vinna er forsenda þess að fiskeldi geti
orðið sterkur atvinnuvegur hér á landi.
í Verinu er kennsluaðstaða fiskeldis-
og fiskalíffræðideildar Háskólans á Hól-
um. I boði er eins árs og þriggja ára nám
í fiskeldi- og fiskalíffræði. Skólinn sér
einnig um kennslu 1 fiskeldi- og fiskalíf-
fræði 1 samvinnu við aðra háskóla. Má
þar nefna að nú er verið að byggja upp
sameiginlegt nám á þessu sviði með Há-
skólanum á Akureyri og Háskóla íslands.
Einnig er fjöldi meistara- og doktors-
nema að vinna að rannsóknaverkefnum
undir leiðsögn sérfræðinga Þróunarset-
ursins. Það er markviss stefna þróunar-
setursins og Háskólans á Hólum að
tengja sem mest saman kennslu og rann-
sóknir m.a. lil þess að tryggja að nýjung-
ar eigi greiða leið út í atvinnulífið.
Háskólinn á Hólum sá um að innrétta
kennslu- og rannsóknaaðstöðuna 1 Ver-
inu með veglegum framlögum frá iðnað-
arráðuneytinu, landbúnaðarráðuneytinu
og Framleiðnisjóði landbúnaðarins. FISK
Seafood á hins vegar húsnæðið og annað-
ist nauðsynlegar breytingar á þvi. Fyrir-
tækið átti líka frumkvæði að því að farið
var í þessa uppbyggingu á Sauðárkróki
og hefur lagt umtalsverða fjármuni í
verkefnið. Hagsmunir fyrirtækisins af
þessu verkefni eru margvíslegir og Þró-
unarsetrið mun hafa jákvæð áhrif á sam-
félagið í Skagafirði. 1 kringum þróunar-
setrið munu byggjast upp öflugar rann-
sóknir sem tengjast og styðja starfsemi
FISK og annarra matvælavinnslufyrir-
tækja í Skagafirði. Þegar er mikið sam-
starf milli Hólaskóla og fiskeldisfyrirtæk-
isins Hólalax. FISK á aðild að tilrauna-
verkefninu um próteinverksmiðjuna og
fleiri verkefni eru ráðgerð. Þeir aðilar
sem koma að Þróunarsetrinu hafa þegar
með sér öílugt samstarf og fyrirsjáanlegt
er að það muni aukast enn frekar. Þróun-
arsetrið mun laða vel menntað fólk til
Skagafjarðar, sem er fært um að afla
styrkja til rannsóknaverkefna og þróun-
arvinnu. Með þvi að skapa Þróunarsetr-
inu aðstöðu er FISK að velta af stað snjó-
bolta sem mun hlaða utan á sig og renna
styrkum stoðum undir atvinnulíf í
Skagafirði.
Helgí Thorarensen, deildarstjóri
Fiskeldis- og fiskalíffræðideild
Háskólans d Hólum
551 Sauðárkrókur
Netfang: helgi@holar.is
Sími: 455 6300
Fax: 455 6301
www.holar.is
44 - Sjómannablaðið Víkingur