Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2005, Síða 20

Náttúrufræðingurinn - 2005, Síða 20
Náttúrufræðingurinn Aldin Hlynur Almur Vænghnota vængæð vængur mátti á fræhúsi og vængjum aldina voru skoðuð og notuð til að lýsa tegundinni. Hér á eftir er væng- aldinum viðkomandi ættkvíslar lýst fyrst og síðan laufblöðum sem talin eru til sömu tegundar. Plöntu- hlutum eða tegund er lýst eftir stafrófsröð undirflokka og svo ætt- bálka. Álmur og vænghnota teljast til undirflokksins nornahesli, en álmur til netluættbálks og væng- hnotan til valhnotuættbálks. Hlynur tilheyrir rósaundirflokknum og því er þeim plöntuleifum lýst síðast. ÁLMUR - U lmus SP. Aldin álms og laufblað sömu ætt- kvíslar, sem hér verður lýst, fundust í setlögum í Hrútagili í Mókollsdal við Steingrímsfjörð. Steingervinga þessa fundu Leifur A. Símonarson og Walter L. Friedrich á árunum 1967-1969, þegar þeir félagar feng- ust við rannsóknir á steingerðri flóru svæðisins. Álmaldinið og laufblaðið eru þau einu sinnar tegundar sem fundist hafa í jarðlögum á Islandi; hvorki aldin né blað af álmi sömu tegundar hefur fundist hér fyrr eða síðar. Setlögin sem steingervingarnir fundust í eru um 9-8 milljón ára gömul. Álmaldin Steingervingur númer 798 í origina- lsafni Náttúrufræðistofnunar ís- lands. Aldinið er flatt vængaldin (2. mynd b), með samanpressað fræhús sem er umlukið himnukenndum væng. Lýsing: Heildarlengd vængaldinsins er um 40 mm með stöngulfestingu en um 36 mm án hennar og það er 24 mm þar sem það er breiðast. Fræhúsið er sporöskjulaga til breiðegglaga og situr í miðju væng- aldininu, 9 mm langt og 7 mm breitt og breiðast rétt fyrir neðan miðju, en hlutfallið á milli lengdar og breiddar (1/b) er 1,3/1. Fræhúsið hefur ávalan til þverskorinn botn, ávalar hliðar og mjókkar frá miðju fram að oddi sem er frekar ávalur. Æðarnar á yfirborði fræhússins eru lóðréttar. Vængurinn sem umlykur það er allt að 36,7 mm 3. mynd. Hlynaldin efst til vinstri, álmaldin efst til hægri og aldin væng- hnotu fyrir neðan. Aldinin eru ekki í réttum stærðarhlutföllum. - Winged samaras of maple, elm and wing-nut (PterocaryaL Sizes are not in scale. langur og 11,2 mm breiður beggja vegna. Miðæð aldinsins liggur meðfram annarri hlið fræhússins sem gefur vængnum ofurlítið ósamhverft útlit (3. mynd). Vængbrúnin er ávöl, með djúpt hak í toppi, en hakið nær hálfa leið niður að oddi fræhússins. Vængurinn hefur áberandi æðar sem ná frá fræhúsi og fram í vængbrún. Æðamar kvíslast á leið sinni í átt að vængbrúninni. Bikarinn er handlaga, ósamhverfur og grípur inn á vænginn (2. mynd b og 3. mynd). Hann er 4,4 mm langur og 3,3 mm breiður. Stöngullinn sem kemur frá bikamum er 3 mm langur og ofurlítið sveigður. Vængaldirúð er einkennandi fyrir álmættina, en aldinum af þessari gerð hefur ekki verið lýst áður, hvorki úr íslenskum né erlendum jarðlögum. Þegar vængaldinið er borið saman við vængaldin þeirra tæplega 50 núlifandi álmtegunda sem eru þekktar, kemur í ljós að þau eru öll mun minni, oftast í kringum 10 mm að lengd. I 2. töflu má sjá nokkrar af þeim tegundum sem bera vængaldin sem verða 15 mm eða lengri. Þó svo að flest vængaldin 18 J

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.