Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2005, Page 43

Náttúrufræðingurinn - 2005, Page 43
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags Árið 1995 tókst ekki að telja í Hrísey, þannig að notuð er talning frá 1993 (28 pör). Ennfremur var ekki búið að telja í öllum óshólmum Eyjafjarðarár þegar hlaup kom í ána og varp spilltist.10 Ekki tókst að telja í átta hólmum (af tæplega 40), en þar voru samanlagt 90 pör 1990 en 77 árið 1992 og er seinni talan notuð nér. Líklega hafa þau verið aðeins færri árið 1995 því hettumáfum fækkaði í Eyjafirði milli 1990 og 1995 (sjá síðar). niðurstöður Árið 1995 Hettumáfar urpu á 32 stöðum á athugunarsvæðinu árið 1995, sjá 4. ntynd. I viðauka eru taldir upp allir þekktir varpstaðir og fjöldi varp- para frá því skipuleg vöktun hófst árið 1990. Vitað er um þrjá staði þar sem hettumáfar urpu ekki 1995 og 2000 en í árum þess á milli, þ.e. við Hólkot og Kálfsá í Ólafsfirði og Arnarneslón á Gálmaströnd. Slíkir staðir geta hæglega verið fleiri þótt ekki hafi náðst að skrá þá. Árið 1995 voru 1547 varppör á talrúngarsvæðinu í Eyjafirði. Rúmur helmingur þeirra (56%), eða 866 pör, varp í nágrenni Akureyrar, langflest i óshólmum Eyjafjarðarár (416). Aðrir varpstaðir voru í Krossanes- horgum (215), við Akureyrarflugvöll (137), við Lónið hjá Dvergasteini (41), við Hundatjörn í Naustaflóa (31), á Kjarna- og Hvammsflæðum (23) og við Drottningarbraut á Akureyri (3). í Eyjafirði voru stór vörp eiimig við Tjörn í Svarfaðardal (182 pör) og við neðanverða Hörgá (H7), en á öllum öðrum stöðum voru færri en 100 pör. Árið 2000 Hikil breyting hafði átt sér stað á utbreiðslu hettumáfa í Eyjafirði árið 2000 frá 1995 því varpstöðum hafði fjölgað um 16, úr 32 í 48 (50% aukning; 4. mynd). Samt hafði þeim fjölgað í reynd um 29 því 13 varp- staðir frá 1995 voru aflagðir árið 2000. Þrátt fyrir þessa fjölgun varp- Vöktunarsvæði SIGLUFJÖRÐUR ■JÖRÐUR HÖFÐAHVERFI Laufás- hólmar ArnarnhsiQD 2 \ 5 HJALTEYI TROLLASKAGI < SVALBARDSl DvergaslBii i gnahryggs- JökuH iborgir Qshólmar \ eyiafjarðarár Hundaijöt íNaustam Kjarna- d Hvammsflædl Kristsnestj íaland <5, Hæð yfir sjávarmáli metrar 1400 stækkað svæði 3. mynci. Vöktnnnrsvæði hettumdfs í Eyjafirði. Ýmis örnefni sem koma fram í texta eru sýnd á kortinu, einnig hæðarlínur og vegir. - The area in Eyjafjörður (N-Iceland) monitored for Black-headed Guils every 5th year. Various iocal names, mentioned in text, are shown, also contour lines and roads. staða óx varpstofmim ekki, eins og ætla mætti, heldur fækkaði varp- pörum úr 1547 árið 1995 í 1325 árið 2000. Nam fækkunin alls 14%, eða að meðaltali um 3,1% á ári. Stærstu vörpin sem hurfu alveg frá 1995 voru við Laugaland (70 pör) og Kaupangsbakka (37). Átta af þessum 13 varpstöðum voru með færri en 10 varppör 1995. 41

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.