Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2005, Page 56

Náttúrufræðingurinn - 2005, Page 56
Náttúrufræðingurinn H 12. mynd. Rauðþörungurinn Furcellaria lumbricalis lifir við norðurmörk lít- breiðslu sinnar í Færeyjum og hefur ekki fundist við ísland. Hann er oft áberandi skammt neðan við neðstu fjörumörk. Kvarðinn er 2 cm. Teikning: Astrid Andreasen. kjarni, ránarkambur, dreyrafjöður, fiðurþari og kóralþang. Beltisþari og ýmsir þráðlaga brúnþörungar eru hins vegar mun meira áberandi á skjólsælum stöðum en brimasömum (14. mynd). Á skjólsælum stöðum í Færeyjum vex þarategund sem ber heila, bylgjótta blöðku og hefur langan stilk sem er þykkastur uppi við blöðku (15. mynd). Þegar stilkurinn er skorinn sundur þar sem hann er sverastur kemur í ljós að hann er holur að innan (16. mynd). Fyrir utan þykkingu á stilk líkist þessi þari mjög beltisþara. Svipaðar þara- plöntur með holum stilk hafa fundist á austurströnd Norður- Ameríku24, hér á landi við Aust- firði25, við Hjaltland26 og Skotland.27 Borgesen28,10 taldi að hér væri á ferð sérstök tegund, eyjaþari. Seinni tíma rannsóknir á æxlun, breytileika í útliti, erfðaefni og áhrifum um- hverfisþátta á útlit og lifnaðarhætti, benda hins vegar úl þess að eyjaþari sé einungis eitt af mörgum af- brigðum beltisþara en engu að síður erfðafræðilega frábrugðinn öðrum afbrigðum.29'30'31 Ef bera á saman sjóþörungaflóru Færeyja og Islands er fyrst að nefna að flóran í Færeyjum líkist mest þörungaflóru Suðvesturlands en þó er tegundafjölbreytni ívið meiri við Færeyjar en hér við land. Þetta stafar af því að allmargar „suðrænar" teg- undir hafa norðurmörk útbreiðslu sinnar við Færeyjar og vaxa ekki við ísland en á hin bóginn eru fáar „norðlægar" tegundir sem koma á móti norðanfrá. Almennt fækkar tegundum eftir því sem norðar dregur á norðurhveli jarðar og hita- stig lækkar. Sjávarhiti er lítið eitt hærri í Færeyjum en hér að vetrar- lagi og er það sennilega aðalástæðan fyrir mun í fjölbreytileika milli landanna. Annar áberandi munur er að þangvöxtur í fjöru er meiri hér við land en í Færeyjum, sérstaklega þar sem nokkurs brims gætir. Það stafar m.a. af ákafri beit mararhettu í Færeyjum eins og áður er vikið að. Hugsanlega hindrar lágur vetrarhiti mararhettu í að nema land á íslandi. Þörunganytjar Fyrr á öldum voru þörungar nýttir í Færeyjum, einkum á fernan hátt: 1) til matar, 2) sem skepnufóður, 3) sem áburður og 4) til litunar. Gamlar frásagnir benda til að þörungar hafi fyrst og fremst verið nýttir til matar þegar fiskveiðar brugðust, veturinn var langur og harður og hungursneyð blasti við.32 Þá sótti fólk í fjöru og tíndi bæði mararhettu og þörunga til matar. Af þörungum voru fyrst og fremst borðuð söl og marinkjami en einnig eru heimildir um að beltisþari og maríusvunta væm höfð til matar.7 Fé hefur einnig verið beitt í fjöruna og át það þá einkum söl. Það virðist helst hafa verið gert á veturna eða þar sem lítið var um annað fóður.7 Rasmussen1 skrifar í fær- 14. mynd. Brúnþörungurinn skollagras (Chordaria flagelliformis) setur svip á þörungagróðurinn inni á fjörðum í Fær- eyjum ásamt öðrum þráðlaga brún- þörungum. Kvarðinn er 4 cm. Teikning: Astrid Andreasen. 13. mynd. Þarastrútar (Lacuna vincta) á beit í marinkjarna við Viðareiði á Viðarey. Ljósm.: Karl Gunnarsson.

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.