Náttúrufræðingurinn - 2005, Side 65
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
NáttOrufarsannáll 2003
Árni Hjartarson og Droplaug Ólafsdóttir tóku saman
í þessum pistlum, sem eiga að birtast reglulega einu sinni á ári, er áformað að geta um þá náttúruviðburði sem
orðið hafa á síðastliðnu ári og þykja minnisverðir. Þó verður hér byrjað á náttúrufarsannál ársins 2003 en annáll
fyrir 2004 mun birtast í næsta hefti. Tímaritinu er ætlað að fjalla um náttúrufræði og náttúrufar á íslandi, en af
ýmsum orsökum hefur það viljað brenna við að stórmerkra viðburða er þar að engu getið. Þess verður t.d. ekki
vart í ritinu að Hekla hafi gosið 1970, 1980, 1991 og 2000 og ekki hafa heldur birst þar skrif um Suðurlands-
skjálftana sumarið 2000 svo dæmi séu tekin úr heimi jarðfræða. Nýrra varpfugla á landinu hefur heldur ekki verið
getið en þeir eru margir. Hugsanlega eiga greinar um þessi atriði eftir að berast, en þar sem Náttúrufræðingurinn
er ekki fréttablað og kemur í besta falli út ársfjórðungslega þá láta menn oftast aðra miðla, eins og t.d. dagblöð eða
héraðsblöð, hafa fyrstu lýsingar sínar og greiningar á aðsteðjandi náttúruviðburðum. Fyllri greinar og úttektir
koma svo ekki fyrr en langt er um liðið og birtast þá stundum eingöngu í erlendum vísindaritum. Nú er ætlunin
að bæta lítillega úr þessu. Ekki verða það þó nema örstuttir minnispunktar, mest til að láta merka náttúruviðburði
ekki liggja óbætta hjá garði í tímaritinu. En einnig er vonast til að þeir geti komið að gagni þegar menn gera upp
tíðindi liðins árs og ekki síst eiga þeir að verða lesendum til ánægju. Það ber þó að hafa í huga að hér er ekki um
strangfræðileg skrif að ræða heldur samsafn af stuttum pistlum sem eru í ætt við annálagreinar.
Árferði
Samkvæmt veðurfarsyfirliti Veðurstofu Islands sem
birtist á Netinu einkenndist árferðið 2003 af
hlýindum um land allt. Árið er í hópi þriggja eða
fjögurra hlýjustu ára frá upphafi mælinga hér á landi.
Breytilegt er eftir landshlutum hvort það er hlýjasta,
næsthlýjasta eða þriðja hlýjasta ár á skrá.
í Reykjavík var meðalhiti 6,1°C, eða 1,8°C yfir
meðallagi, og telst árið það hlýjasta frá upphafi
mælinga. Hitamunur nú og árin 1939 og 1941 er þó
varla marktækur. I Stykkishólmi var meðalhitinn
5,4°C, eða 0,3°C yfir meðallagi, og þar með féll
hitametið þar frá 1941.
Meðalhitinn á Akureyri var 5,1°C, sá næsthæsti frá
upphafi mælinga, en metið frá 1933 stendur enn,
5,6°C. Apríl og ágúst þóttu sérlega hlýir, t.d. var hiti
víða um og yfir 20°C um norðan- og austanvert
landið 18. og 19. apríl og á Sauðanesi fór hann í
21,1°C, sem er mesti hiti sem mælst hefur hér á landi
í apríl. Ágúst er sá hlýjasti sem mælst hefur bæði í
Reykjavík og í Stykkishólmi en samfelldar mælingar
hófust í Stykkishólmi 1845. Á Akureyri er vitað um
einn hlýrri ágúst en það var árið 1947. Óvenjusnjólétt
var um allt land, lítið um stórviðri, úrkoma um og
yfir meðallagi, sem sagt góðæri.
Jöklar
Að sögn Odds Sigurðssonar, jöklafræðings á
vatnamælingadeild Orkustofnunar, voru flestir jöklar
á undanhaldi og hefur svo verið í 6-8 ár. Hlaup er í
Reykjafjarðarjökli en það er ístunga sem skríður til
norðurs úr Drangajökli. Framgangur jökulsins var 70
m á árinu. Hlaupið hófst 2002 og gæti staðið eitt til
tvö ár enn. Einnig er hlaup í Búrfellsjökli í
Svarfaðardal, sem er smájökull í botni lítils þverdals.
Tveir framhlaupsjöklar í Svarfaðardal. T.v. er Teigardalsjökull sem
hljóp árið 1971. T.h. er Búrfellsjökull að hlaupa fram. Sprungurnar í
ísnum stafa af htaupinu. Þetta eru minnstu framhlaupsjöklar sem
þekktir eru í heimi. Myndina tók Oddur Sigurðsson 15. 9. 2003.
Hlaup í smájöklum af þessu tagi eru fágæt og lítt
rannsökuð. Hlaupið hefur staðið yfir í þrjú ár og er
Búrfellsáin, sem frá jöklinum fellur, kolmórauð og
litar Svarfaðardalsá allt til sjávar. Búrfellsjökull er
talinn hafa hlaupið árið 1913 (sjá einnig www.jorfi.is).
Jarðskjálftar
Skjálftavirkni á Islandi var minni árið 2003 en árin á
undan, sem voru fremur óróleg. Virknin undir
vestanverðum Mýrdalsjökli, sem hófst 1999, hélt þó
áfram og hélst lítið breytt út árið. Mesta skjálftahrina
ársins varð 27. apríl við Geirfuglasker, öflugasti
skjálftinn þar mældist 4,0 stig á Richter. Athyglisverð
smáskjálftahrina varð í fyrrihluta nóvember á línu
austan Dyngjufjalla sem teygðist norður fyrir
Herðubreið.