Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2005, Síða 67

Náttúrufræðingurinn - 2005, Síða 67
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags verið talinn útdauður sem varpfugl á íslandi síðan 1963. Framræsla mýra og tilkoma minks í íslenska náttúru eru taldar meginorsakir þess að keldusvín hvarf úr hópi íslenskra varpfugla. Holudúfa (Columba oenas) sást í fyrsta skipti á íslandi á landi Hala í Suðursveit 20. apríl. Tegundin sást aftur á sama stað í nóvember en óvíst er hvort um sama fugl hafi verið að ræða. í maí sást til laufglóa (Oriolus oriolus) á Reyðarfirði og mun það vera í tíunda sinn sem slíkur fugl sést hér á landi. Þá lenti múrsvala (Apus apus), evrópskur flækingsfugl, í hrakningum á Eskifirði í miklu regnveðri í maí. Fuglalíf var óvenjufjölskrúðugt yfir sumarmánuðina. Varp glóbrystings (Erithacus rubecula), skógarsnípu (Scolopax rusticola), eyruglu (Asio otus), dvergmáfs (Larus minutus) og fjallakjóa (Stercorarius longicaudus) var í fyrsta skipti staðfest hér á landi. Auk þess verptu fjölmargar tegundir sem öðru hverju reyna varp hér og kalla má jaðartegundir á íslandi. Blábrystingur (Luscinia svecica) fannst í Skarðshlíð undir Eyjafjöllum 13. október. Fuglinn er fremur sjaldséður hér á landi og barst sennilega til landsins með austanátt frá Skandinavíu. Elrigreipur (Empidonax alnorum) sást á svipuðum slóðum í Kverkinni undir Eyjafjöllum 10. október. Uppruni þessa spörfugls er í Ameríku og er þetta fyrsti fundur tegundarinnar í Evrópu. Nokkrar aðrar amerískar fuglategundir sáust á svipuðum tíma og hafa sennilega borist til landsins með kröppum haustlægðum frá austurströnd Norður-Ameríku. í þessum hópi var norðuramerískur spörfugl, bláskríkja (Dendroica caerulescens) sem fannst í Heimaey í annað sinn á Islandi þann 17. október. Tíu dögum síðar sást náskyld norðuramerísk tegund, grænskríkja (Dendroica virens) í fyrsta sinn á íslandi svo staðfest sé, í skógarlundi norðan Grindavíkur. Hryggleysingjar Sitkalús (Elatobium abietinum) herjaði á greni í Reykjavík yfir vetrarmánuðina einsog gjarnan þegar vetur eru mildir. Mikið bar á skordýrum þegar líða tók á sumarið sem einnig má rekja til hagstæðs tíðarfars undangengna vetur og vor. í ágúst sást víða til kóngasvarma (Agrius convolvuli), flökkufiðrilda sem lifa aðallega í S-Evrópu og Afríku. Vænghaf fiðrildanna er allt að 11 sentímetrar og hafa þau mikla flughæfileika. Sennilegt er að þau hafi borist til landsins með sterkum vindum frá Evrópu. Spánarsnigill (Arion lusitanicus) fannst í fyrsta sinn í Reykjavík síðsumars. Hann hefur borist frá heimahögunum í Suður-Evrópu norður á bóginn á undanförnum áratugum en hefur ekki fundist hér á landi fyrr en nú. Snigillinn er 7-15 cm á lengd. Hann getur étið hálfa þyngd sína á dag og við hagstæðar aðstæður getur viðkoma hans verið mjög hröð. Snigillinn er ekki algengur né til vandræða í þurru og röku loftslagi Suður-Evrópu. Uthafsloftslag með rökum sumrum og mildum vetrum í Norður- Evrópu virðist hins vegar henta honum mjög vel og þar er hann víða orðin alræmd plága í matjurtagörðum. Ljósmynd: Erling Ólafsson. Rjúpa (Lagopus mutus) Stærð rjúpnastofnsins virtist í sögulegu lágmarki. Fækkun sem hófst 1998 hélt áfram 2003 og rjúpna- talningar sýndu fækkun eða kyrrstöðu frá árinu 2002 á nær öllum talningasvæðum. Sveiflur í rjúpnastofn- inum þar sem um 10 ár líða á milli hámarksára eru vel þekktar. Síðasta stóra hámarkið var 1955 en síðari toppar hafa farið stigminnkandi og svo virðist því sem rjúpnasveiflan sé að sléttast út. Þótt orsakir séu ekki að fullu Ijósar ákvað umhverfisráðherra að banna alla rjúpnaveiði í 3 ár frá árinu 2003 (2004 var bannið stytt í 2 ár). 65

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.