Náttúrufræðingurinn - 2000, Page 42
■ VIÐAUKAR
A ALDURSÁKVÖRÐUN LIBBYS
Á grundvelli þeirra gagna sem Libby hafði tekist að safna í upphafi sjötta áratugarins áleit
hann að C-14 remman í öllum nýsprottnum gróðri, A(), hefði haldist óbreytt í þúsundir ára og
þessa remmu gæti hann því mælt í ungum plöntum. Libby hafði mælt helmingunartíma
geislakolsins og fengið 5568±30 ár. Af lögmálinu um geislahrörnun var nú hægt að reikna út
aldur jurtaleifa, T, þegar C-14 remma þeirra, Ax, hafði verið mæld:
r = - (5568/ln2) ln(Av /Ag) = - 8033 ln(A( /Ag) (2)
þar sem 8033 er meðalævi C-14 atómanna. Af þessari jöfnu er ljóst að einungis þarf að mæla
hlutfall geislastyrks tveggja sýna.
Mælingar, sem rætt er um í Viðauka G, sýndu að A() er 95% af remmu alþjóðlegs mælistaðals,
sem var oxalsýra, gerð af National Bureau of Standards í Bandaríkjunum, sem allar
aldursgreiningarstofur fengu skammt af. Ef remma oxalsýrunnar er táknuð með Am fæst
reiknaður aldur af jöfnunni:
r = - 8033 ln[Av RAox 0,95)] (3)
Innleiddur hefur verið sýndarstaðall, Modern Standard (MS), sem er skilgreindur út frá
oxalsýrunni og hefur MS-staðallinn C-14 remmu sem er 95% af remmu hennar; hann hefur því
nákvæmlega sama gildi og A0. Styrkur sýna er oft gefinn sem %MC. Þar eð oxalsýran er
grunnviðmiðun og remman Ag aðeins nálgunargildi, hefði verið einfaldara að miða remmu allra
sýna við oxalsýruna, en á þeim tíma sem MS-staðallinn var innleiddur var enn talið að remman
í nýsprottnum gróðri hefði ávallt verið hin sama. Sýndarstaðallinn Modern Standard er dæmi
um eina af sögulegum flækjum geislakolsgreininganna.
B. C13/C12-HLUTFALLIÐ OG SAMSÆTUHLIÐRUN
C13/C12-hlutfallið má mæla með mikilli nákvæmni í massagreini. Hlutfallið er nær ávallt miðað
við remmu staðalsýnis, sem er sjávarkarbónat, og er þá jafnan mælt hlutfallslegt frávik frá
staðlinum, svokallað SI3C -gildi (delta-gildi);
813C= (C13/C12)sín. / (C13/C12)itaðall -1 (4)
Þetta frávik er venjulega sýnt í þúsundustuhlutum (%o) og frávikið er alls staðar í lofthjúpi
jarðar nánast hið sama, -8,0%c. Enda þótt allt kolefni plantna komi úr andrúmsloftinu er C-13
remma þeirra lægri en í lofthjúpnum, eða á bilinu -20%o til -30%c. Þessi lækkun í samsætu-
hlutfallinu, sem verður við ljóslífgun, nefnist samsætuhliðrun. Hún stafar af því að
efnahvörfin eru dálítið hæggengari fyrir C-13 en C-12 atómin vegna massamunar atómanna.
Hliðrunin er mismikil eftir aðstæðum, því ljóslífgunin og efnahvörf í plöntum verða við
mismunandi hita og eftir tveimur afbrigðum í ferli ljóslífgunarinnar. Meðalgildið fyrir 813C í
plöntum er -25%c.
104