Náttúrufræðingurinn - 1985, Page 10
7. mynd. Hjálparfoss í Fossá, sem hefur grafið sig inn í Þjórsárdalshraun. Skeljafell er í
baksýn og líparít hryggur í því sést sem ljós blettur. - Tlie waterfall Hjálp in the Fossá
river. The river is cutting through the Þjórsárdalur lava. Note Mt. Skeljafeli in the
hackground witli its rhyolitic ridge (lighter shade). (Ljósm Jphoto: Ágúst Guðmundsson
júlí 1981)
fellsstöðvar. Sámsstaðamúlamyndunin
liggur að því er best verður séð inn
undir Skeljafell austanvert, um fyrr-
nefndan dal, sem virðist hafa legið þar
sem Sámsstaðamúli er nú (8. ntynd).
Þegar norðar dregur með austur-
hlíðum Stangarfjalls, unt Hólaskóga
og inn með Rauðá er basalt Sáms-
staðamúlamyndunar orðið að 2-3
þykkum hraunlögum, sem hafa all-
breytilega ásýnd, svo sent við Rauðá.
Þaðan má rekja hraunlögin inn undir
Sandafell þar sem þau hafa runnið
milli gamalla móbergshryggja og
verða því slitrótt. Aftur koma þessi
hraunlög fram við lokuvirki Sultar-
tangastíflunnar austan í Sandafelli og í
Fitjaskógum. Einnig ganga hraunlögin
austur í gegnunr Búðarháls og upp
með vesturbakka Köldukvíslar gegnt
Þóristungum. Segulstefna Sámsstaða-
múlamyndunar er öfug og aldur henn-
ar er að öllum líkindum rúmlega 1
milljón ár.
SA Sandafellsmyndun. í neðri hluta
Sandafellsmyndunar eru aðallega set-
lög, en efri hlutinn er úr hraunlögum.
Setlögin hafa lagst yfir óslétt yfirborð
líparíts Reykholtsmyndunar og einnig
yfir Sámsstaðamúlamyndun. Setlögin
eru einkum sandsteinn, völuberg og
jökulberg, en auk þess tilheyrir henni
104