Náttúrufræðingurinn - 1985, Page 16
km3 að stærð. Flest hafa þau runnið
tugi kílómetra frá upptökum (allt að
130 km), en hraunin frá Heklu eru
yfirleitt 0,1-0,3 km3 og hafa runnið
lengst um 12 km frá upptökum,
a. m. k. við Heklu norðan- og vestan-
verða. Tungnárhraun eru helluhraun,
þótt þau séu oft úfin og brotin, en
Hekluhraunin eru apalhraun. Yfir-
borð hraunanna sést yfirleitt ógreini-
lega á kortlagða svæðinu vegna þess
að þau eru mjög gjóskuborin og stund-
um alveg hulin eins og milli Búrfells og
Sauðafellsöldu.
Um aldur hrauna er nokkuð vitað út
frá afstöðu þeirra til þekktra gjósku-
laga eins og sést á 2. mynd. Gjósku-
lögin, sem aðallega hafa verið notuð
til aldursákvörðunar eru Heklulögin
H5 um 6200 ára, H4 um 4000 ára og
H3 um 2800 ára. Aldurinn er miðaður
við óleiðréttan geislakolsaldur (Guð-
rún Larsen og Sigurður Þórarinsson
1978). Auk þess eru nokkur fleiri
gjóskulög notuð til viðmiðunar t.d.
„landnámslagið", sem kom upp við
gos í Vatnaöldum rétt fyrir árið 900 og
lag kennt við Grákollu um 1850 ára
(Guðrún Larsen 1984).
TUNGNÁRHRAUN
Þrjú elstu Tungnárhraunin, Þjórsár-
hraun eldra (THa), Þjórsárhraun
yngra (THb) og nafnlaust hraun (THc)
eru sýnd á afstöðumyndinni (3. mynd)
þótt þau sjáist ekki á yfirborði, en hafa
fundist í borholum í sundinu milli
Búrfells og Sauðafellsöldu. Þau koma
fram undan yngri hraunum milii Búr-
fells og Galtalækjar rétt sunnan við
jaðar kortlagða svæðisins. Elsta
hraunið er um 8000 ára (C14 aldur),
(Guðmundur Kjartansson o. fl. 1964).
Tungnárhraun (THd, THe). Elstu
hraunin, sem sjást á yfirborði á kort-
lagða svæðinu eru Tungnárhraunin
(THd) og (THe). Þau eru nafnlaus.
Þau koma fram í dalnum milli Lang-
öldu og Búðarháls og einnig í Leirdal
og við Þjófafoss. Aldur þessara
hrauna er áætlaður um 5500 ár.
Kvíslahraun (THf) hefur víða fund-
ist í borholum milli Búrfells og Búðar-
háls. Á yfirborði sést það við jaðar
Sölvahrauns og í Rangárbotnum, einn-
ig fyrir neðan Tröllkonuhlaup og við
Þjófafoss. Kvíslahraun er aðeins eldra
en H4 og er aldur þess áætlaður um
4500 ár.
Þjórsárdalshraun (THh) er næst í
aldursröðinni. Það hefur farið niður
Gjána í Þjórsárdal (11. mynd) og
breitt úr sér í dalnum. Þar einkennist
það af þyrpingum af gervigígum, sem
gefa dalnum sérstakt svipmót. Við
fossinn Hjálp er mjög fallegt fossgljúf-
ur, þar sem Fossá hefur skorið gegn-
um hraunið eins og sést á 7. mynd og
þar má einnig sjá gervigíga í hrauninu.
Lítill sem enginn aldursmunur virðist
vera á Þjórsárdalshrauni og Búrfells-
hrauni, sem lýst er hér á eftir, en þau
eru vel aðgreind af háum hraunjaðri
ofan við Gjána.
Búrfellshraun (THi) hefur mesta út-
breiðslu á kortlagða svæðinu. Það rann
skömmu áður en gjóskulagið H3 féll
eða fyrir um 3000 árum. Það hefur runn-
ið beggja vegna Stóra-Melfells og meira
að segja hefur örmjó tunga úr því náð
að renna um gilskorning þvert yfir
Stóra-Melfell. Búrfellshraun breiðir úr
sér í lægð milli Melfells og Langöldu,
þar sem síðar opnaðist gossprungan
Heklutögl á nyrsta hluta Heklukerfisins.
Þegar kemur vestur fyrir Valafell og
Langöldu breiðir Búrfellshraun úr sér.
Tunga úr því teygir sig langt inn eftir
farvegi Þjórsár milli Búðarháls og
Fitjaskóga. Tungan er hulin seti er
innar dregur, en útbreiðsla hraunsins
þar hefur verið könnuð með segulmæl-
ingum og borunum í sambandi við
110