Náttúrufræðingurinn - 1985, Side 28
fara rek snúningspólsins (polar wand-
ering) hafi átt sér stað á jarðsögu-
legum tíma, auk þess sem meginlöndin
hafi verið á hreyfingu (landrek).
Vegna ýmisskonar skekkjuþátta hefur
ekki tekist að sýna fram á áhrif pólreks
eða landreks á segulstefnur í íslensku
bergi svo öruggt sé.
I samantekt segulstefnumælinga úr
yfir 2000 hraunlögum á íslandi (Leó
Kristjánsson og McDougall 1982) gefa
um 50% þeirra sýndarsegulpóla, sem
liggja á breiddargráðum lægri en 65°
norður eða suður. 20% hraunanna
gefa póla á lægri breiddum en 50°, og
2% gefa póla sem eru innan við 10° frá
miðbaug. Þeir síðastnefndu samsvara
því að stefna segulsviðsins hér sé þá
nálægt láréttu.
Eftir því sem sýndarsegulpóllinn
færist lengra frá snúningspólnum,
dofnar segulsviðið víðast hvar á jörð-
inni. Þetta stafar væntanlega af hinum
sterku áhrifum möndulsnúnings jarðar
á orsakavalda rafstraumsins í jarð-
kjarnanum. Óvíða á jörðinni eru jarð-
lagasyrpur nógu heillegar til þess að
kanna vel þessar breytingar, en sam-
kvæmt mælingum á íslenskum
hraunum (3. mynd) virðist sviðið hér
dofna að meðaltali um nálægt 85%,
þegar sýndar-segulpóllinn færist frá
snúningspólunum að miðbaug. Þetta
samsvarar því að tvípólvægi jarðar
(örin á 2. mynd) dofni um því sem
næst 75%, og getur þá jafnvel verið að
megin-straumlykkjan í kjarnanum
hverfi stundum alveg um tíma.
Við þessar aðstæður kemur það
fyrir, að segulpóllinn flökti alla leiðina
yfir miðbaug og haldi áfram flökti sínu
þar, kringum gagnstæðan snúningspól.
Slíkir umsnúningar verða líklega með
tilviljanakenndu millibili, og hafa
margir talið á undanförnum 10-15
árum, að þetta gerist að meðaltali 4—5
sinnum á hverri ármilljón. fslenskar
3. mynd. Dofnun hitasegulmögnunar, Jt, í
íslenskum hraunlögum, með lækkandi
breiddargráðu sýndarsegulpóls. Meðaltöl
úr alls 2163 hraunum, skipt í hópa fyrir 10°
bil pólbreiddar, normalt og öfugt segul-
mögnuð hraun saman. Fjöldi hrauna í
hverjum hóp sýndur, svo og staðalskekkju-
mörk. — Arithmetic average remanence in-
tensities (after 100 Oe a-c treatment) in
lcelandic lavas, as a function of V.G.P.
latitude. Standard error bars included.
rannsóknir benda þó fremur til þess að
umsnúningarnir séu tíðari, eða a.m.k.
8 sinnum á ármilljón að meðaltali.
Sjálfir umsnúningarnir sjást nánast
aldrei í smáatriðum í íslenskum
hraunsyrpum, þar eð þeir virðast taka
að meðaltali 5—6000 ár en tímalengd
milli einstakra hraunlaga í mælisniðum
hér er nálægt 8000 árum. Með víð-
tækum athugunum á svokölluðum
dyngjuhraunum, sem runnið hafa með
mun styttra millibili, ætti þó að vera
hægt að kanna hegðun sviðsins við
umsnúningana allnáið.
Eins og stendur, er segulsvið jarðar-
innar í sterkara lagi, en fer dofnandi
122