Náttúrufræðingurinn - 1985, Page 31
5. mynd. Mæling á segul-
stefnu handsýnis úr hraun-
lagi. - Field measurement of
magnetic polarity in a lava
sample.
Á 4. mynd eru þrjár tegundir seg-
ulmögnunar í sama sýninu sýndar með
örvum, á sama hátt og tvípólvægið á 2.
mynd. Heildarsegulmögnunin er
summa þessara þriggja, ef þær eru
lagðar saman sem vigurstærðir (vect-
ors). Styrkur hinna þriggja segul-
mögnunargerða í íslensku blágrýti frá
síðtertíer og árkvarter er að meðaltali
um 4 A/m fyrir Jt, 0.3 A/m fyrir Jv og 1
A/m fyrir Jj. í berggöngum eru Jv og J|
hinsvegar hlutfallslega stærri miðað
við Jt, og veldur það auknum vand-
kvæðum á mælingu upprunalegrar seg-
ulmögnunar í þeim.
SEGULMÆLINGAR UTANHÚSS
OG Á RANNSÓKNASTOFU
Við mælingu á segulstefnu í bergi úti
í mörkinni (4. og 5. mynd) er brotið
handsýni af berginu, og nrerkt með ör
hvor endi þess vísaði upp. Báðir endar
sýnisins eru síðan bornir að næmum
segulsviðsmæli, eða áttavita með
langri nál. Ef útslag mælisins er greini-
lega í aðra áttina þegar efri endi sýnis-
ins er borinn að mælinum, og svo í
hina áttina þegar sá neðri er borinn
að, má telja öruggt að varanleg segul-
mögnun sýnisins (hér Jt + Jv) sé að
mestu í lóðrétta stefnu og yfirgnæfi
hrifsegulmögnun þess í jarðsegulsvið-
inu. Ef 4—5 sýni úr mismunandi hæð í
sama hraunlaginu (þar sem vænta má
mismunandi kornastærða og annarra
innri eiginleika bergsins) gefa sanrs-
konar útslag, er segulstefna lagsins
sögð vera rétt (eða niður, N) eða öfug
(upp, R).
Oft eru niðurstöður segulstefnunræl-
inga úti í mörkinni ófullnægjandi. Hér
á eftir verða helstu ástæður þess til-
greindar, og því lýst hvernig þessir
skekkjuvaldar hverfa að mestu við
mælingar á rannsóknastofu.
(a) Lögun sýnis getur verið óreglu-
leg eða styrkur segulmögnunar mis-
mikill í hlutum sýnisins. Þetta veldur
þá því að erfitt er að fá óyggjandi N
eða R útslag. Til mælinga á rann-
sóknastofu eru hinsvegar notuð reglu-
leg sívöl borkjarnasýni (venjulega 25
mm í þvernrál og 22 mm á lengd), og
mæld í sérstökum útbúnaði sem leið-
réttir fyrir áhrifum missterkrar segul-
mögnunar innan sýnisins.
(b) Segulmögnun getur verið dauf
eða mikið hallandi frá lóðréttri stefnu.
Þetta tvennt fylgist oft að, sbr. 3.
mynd. Stefnumæling (1. mynd) bor-
kjarna og mæling segulstefnunnar
innan kjarnans i rannsóknastofunni er
hinsvegar gerð með bæði nákvæmari
og næmari tækjum en mæling utan-
húss. Úr meðaltali fjögurra kjarna-
sýna úr hverju hrauni má oftast finna
staðsetningu sýndarsegulpóls með
óvissu sem er minni en L0°. Þá hefur
125