Náttúrufræðingurinn - 1985, Qupperneq 37
Ingólfur Davíðsson:
Merk blómjurt í sjó
Marhálmur (Zostera marina L.) er
alkunn blómjurt, sem vex eingöngu í
sjó. Lónajurt vex einnig í sjó, a.m.k.
að mestu, og hnotsörvi í hálfsöltu
vatni.
Marhálmur er fjölær jurt með löng,
mjúk, dökkgræn, bandlaga blöð. Þau
eru oft 50-60 cm löng, en geta orðið
allt að 1 metri. Smá, litdauf blóm sitja
í axi, sent situr í hulstri við eina blað-
öxlina, einn frævill og ein fræva í
hverju blómi. Aldinin eru aflöng,
langgárótt og trýnd, ljósbrún að lit.
Blöðin vaxa upp af láréttum, greinótt-
um jarðstöngli og losna smám saman,
einkunt þó á haustin og rekur á land
(1. mynd).
Marhálmur vex á leirbotni í fremur
1. mynd. Marhálmur (Zost-
era marina L.). Frá Rolf
Nordhagen: Norsk Flora.
Illustrasjonsbind. Annet
hefte. Enfr0bIadete. Oslo
1948.
Myndin sýnir norsk eintök
sem eru með breiðari blöðum
en íslensk; a) ung blómskipun
með slíðurblaði (I/3), b)
þroskaðri blómskipun (%), c)
blaðoddur (4A), d) hluti blóm-
skipunar, e) klofin fræva
(stækkuð), f) aldin með stíl
og fræni (3/i).
Náttúrufræöingurinn 54 (3-4), bls. 131-133, 1985
131