Náttúrufræðingurinn - 1985, Qupperneq 41
Ágúst Guðmundsson:
Samsetti gangurinn á Streitis-
hvarfi við Breiðdalsvík
INNGANGUR
Samsettir kallast þeir gangar scm
eru úr tveimur eða fleiri ólíkum berg-
tegundum. Hér á landi eru samsettir
gangar úr líparíti og basalti algengir á
nokkrum svæðum, en fátíðir utan
þeirra. Einkum eru samsettir gangar
algengir á Austfjörðum, en þar eru
yfir 50 slíkir þekktir (Walker 1966).
Einnig er nokkuð um samsetta ganga á
suðausturlandi (Helgi Torfason 1979),
og samsettir gangar munu algengir á
svæðinu við Setberg á Snæfellsnesi
(Haraldur Sigurðsson 1966). Á öðrum
svæðum sem hafa verið kortlögð ræki-
lega virðast samsettir gangar sjaldgæf-
ir. Til dæmis eru slíkir gangar ekki
nefndir í ritgerð Hjalta Franzsonar
(1978) um Hafnarfjall og Skarðsheiði,
né í ritgerð Ingvars Birgis Friðleifs-
sonar (1973) um Esju og nágrenni.
Engan samsettan gang fann ég heldur
við rannsóknir á um 400 göngum á
svæðinu milli Arnarfjarðar og Barða-
strandar.
Á þeim svæðum þar sem samsettir
gangar finnast á annað borð eru þeir
algengari en líparítgangar. Þannig eru
samsettir gangar algengari en líparít-
gangar á Austfjörðum (Walker 1966).
Einnig eru samsettir gangar oft þykk-
ari en líparítgangar sömu svæða. Til
dæmis er meðalþykkt samsettra ganga
á Lónsöræfum 6,5 m, og 6,3 m á
Skálatindum, en meðalþykkt líparít-
ganga á þessum sömu svæðum er 4,9
m og 3,5 m (Helgi Torfason 1979).
Þykkt samsettu ganganna á Austfjörð-
um er yfirleitt á bilinu 10-25 m, en sá
þynnsti sem fundist hefur er aðeins 35
cm (Walker 1966).
Kunnasti samsetti gangurinn hér á
landi er sá sem kenndur er við Streitis-
hvarf við sunnanverða Breiðdalsvík
(1. mynd). Ganginum var lýst Iauslega
af Þorvaldi Thoroddsen (1906), en
síðar var bergfræði hans könnuð ræki-
lega af Guppy og Hawkes (1925) og
Gunn og Watkins (1969). í vel þekktri
kennslubók eftir Daly (1933) er þessi
gangur tekinn sem klassískt dæmi um
samsettan gang. Walker og samstarfs-
menn hans víkja í sumum greinum
sínum að þessurn gangi, án þess þó að
lýsa honum ítarlega (sjá t.d. Walker
1966, Gibson o.fl. 1966).
Við athuganir á göngum á Aust-
fjörðum sumarið 1980 (Ágúst Guð-
mundsson 1983) kannaði ég einnig
samsetta ganginn á Streitishvarfi. Sú
lýsing sem hér fer á eftir er byggð á
þeirri könnun. Markmið þessarar
greinar er annars vegar að lýsa gangin-
um, og hins vegar að ræða myndun
hans. Samsetti gangurinn á Streitis-
hvarfi er forvitnilegur fyrir jarðfræð-
inga, en að auki er hann merkilegt
náttúrufyrirbæri í alfaraleið sem vert
er að vekja athygli á.
Náttúrufræðingurinn 54 (3-4), bls. 135-148, 1985
135