Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1985, Page 61

Náttúrufræðingurinn - 1985, Page 61
Guðmundur Jónsson: Hugleiðingar um eldgos í Skaftafellssýslu Dagana 12. —14. ágúst 1983 var ég þátttakandi í ferð að Lakagígum á veg- um Hins íslenska náttúrufræðifélags. Var dvalist tvær nætur í Varmárdal austan við hraunbrúnina. Þar við rætur Varmárfells eru þykk- ar jarðvegstorfur, sem eru sundur skornar af lækjum. Þar konta fram mörg ösku- og vikurlög, og vakti eitt þeirra athygli mína sérstaklega. Var það svart vikurlag um 10 cm á þykkt. Skammt fyrir neðan það var þykkt gráleitt sandlag, sem líklega er efri hluti „landnámslagsins“ svonefnda, en ofar sést hvítt öskulag úr Öræfajökli 1362, og einnig sást örlítill vottur af hvítu lagi, líklega frá Heklu 1104. Þorleifur Einarsson, jarðfræðingur athugaði þessi lög og taldi svarta vik- urlagið vera komið úr Eldgjá, sem hefði gosið ntiklu gosi um árið 935. Ég var ekki alveg sáttur við þessa skýringu. Vikurlagið er að vísu örugg- lega fra 10. öld, en afstaða þess til annarra þekktra öskulaga bendir ein- dregið til, að það sé frá síðari hluta aldarinnar. Þess vegna vil ég leita að betri skýringu. Jarðfræðingar eru sammála um, að víðáttumikil hraun í Vestur-Skafta- fellssýslu séu frá Eldgjá runnin, en þá greinir á um aldur þeirra. Jón Jónsson telur þau um 5200 ára, en aðrir jarð- fræðingar álíta hraunin rúmlega 1000 ára eða frá 935. Eldgjárhraunin eru auðþekkt frá öðrum hraunum, eins og Jón Jónsson lýsir í grein í Náttúrufrœðingnum (1978 bls. 217): „Eldgjárhraunið er gjörólíkt hraununum af Skaftársvæðinu, þ. e. svæðinu austan Fögrufjalla og milli þeirra og Galta, Varmárfells, Blængs að austan. Raunar er það gerólíkt og auðþekkt frá öllum hraunum austan Skaftár, sem og hraununum á Veiðivatna- og Heklu- svæðinu. Af þessum sökum tala ég hér eftir um hraunin á Mýrdalssandi og í Álftaveri ásamt Landbrotshrauninu sem Eldgjárhraun. Styð ég þetta við athuganir á fjölda sýna úr hraunun- um á Mýrdalssandi, Álftaveri, Landbroti og úr Eldgjá sjálfri." í sömu grein kemur fram, að Jón Jónsson telur nafnið á Eldgjá fornt en ekki gefið af Þorvaldi Thoroddsen. Það er vísbending í þá átt, að Eldgjá hafi gosið á sögulegum tíma. Guðrún Larsen skrifar um aldur Eldgjárhrauna í Náttúrufrœðingnum 1979 (bls. 1 — 26) og á bls. 7 segir m. a.: „l)r þeim hluta gossprungunnar, sent í daglegu tali kallast Eldgjá, kom bæði lnaun og gjóska. Eldgjár- gjóskan barst til suð-suðvesturs og myndar mikið gjóskulag, kallað E-l. Það er einnig jafngamalt hrauninu í Náttúrufræöingurinn 54 (3-4). bls. 155-158. 1985 155

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.