Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1985, Page 74

Náttúrufræðingurinn - 1985, Page 74
maí 1726. Líklegt er að rekja megi frásögn Hrafnagilsannáls til þessa bréfs. Sá var einmitt háttur margra annálaritara að leita fanga í skrifuðum heimildum, svo sem bréfasöfnum, dómasöfnum o.fl. Séra Jón segir svo frá [1]: Þessu næst auglýsi ég þann skaða, sem skeður er á staðarlandinu og tveimur hjáleigonum, Suðurseli og Ytraseli, sem Jökulsá gjörði með sínum 5 jökul- vatnshlaupum á næst umliðnum vetri. Það fyrsta hennar hlaup skeði þann 10. nóvembris og stóð yfir til þess 13. sama mánaðar. Það annað hennar hlaup byrjaðist nóttina milli þess 17. og 18. martí, og var jafnan að renna til þess 23. sama mánaðar. Þriðja sinn liljóp hún nóttina milli þess 24. og 25. martí, í hvörju hlaupi hún drap í Suðurseli 106 sauði, 4 kýr og 1 kvígu, en í Ytraseli 38 sauði og 1 kálf. Þetta tók hún flestallt innan húsa, því hún gekk inn í þau, eins að ofan sem neðanverðu. Hér að auk fordjarfaði hún og ónýtti bæði hey og mat og alla búshluti. Eirnin eyðilagði og niðurbraut húsin með jakaburði, sandi og ösku. En fólkið varðist á hæðstu húsþekjum og heyrofum. Með þessum hætti, fyrir hjálp Drottins, komst það af lífs. Auk þessa hljóp hún tvö jökulvatnshlaup fáum dögum þar eftir, sem var þann 5., 6. og 7. aprílis. Síðan þetta skeði, standa báðar þessar fyrrnefndu hjáleigur í eyði. Skaða þann, sem hún hefur gjört á landi og engjum, get eg ei að svo stöddu auglýst með mínu eindæmi, því þetta pláss hef- ur ei kannað orðið vegna stærstu ófærð- ar og skaðsamlegrar sandbleytu. Það er og umflotið af Jökulsá og hennar kvísl- um. Dagsetningar í bréfinu leiða í Ijós að þarna er um tvö aðalhlaup að ræða. Það fyrra stendur yfir í þrjá sólar- hringa, 10, —13. nóvember 1725. Hið síðara í rúma fimm sólarhringa, 18.— 23. mars 1726. Nú kemur lognið á undan storminum, því að degi síðar kemur enn hastarlegt hlaup í ána, og mun það hafa staðið yfir í tæpan sólar- hring. Þetta hlaup var mesti tjónvald- urinn. Síðustu eftirhreyturnar koma svo 10 dögum síðar, 5.-7. apríl. Ef- laust hefur fólk þá verið búið að yfir- gefa hjáleigurnar, þrátt fyrir sand- bleytu, erfiða færð og yfirvofandi hlaup. í Ritsafni Þingeyinga II (2), er merkilegur fróðleikur um forn eyði- býli í Norður-Þingeyjarsýslu. Jón Sig- fússon bóndi á Ærlæk skrifar þar um Öxarfjarðarhrepp. Hann segir að Geirasel, sem sýnt er á kortum, hafi verið byggt á rústum hins forna Suður- sels. Líkur bendi hins vegar til, að Ytrasel hafi verið beint á móti Núpi, rétt sunnan við Akursel (hið nýja). Akursel hið forna hafi hins vegar frá ómunatíð verið syðsti bærinn á Aust- ursandi, suður af Geiraseli, nokkurn veginn á beinni línu milli Ærlækjarsels og Klifshaga. Bærinn var fluttur um miðja síðustu öld vegna sandfoks. Eru rústirnar nú horfnar undir sandöldu (Ritsafn Þingeyinga II (2), 82—84). Við þessa frásögn Jóns Sigfússonar má gera eina athugasemd. Stefán Jónsson bóndi í Ærlækjarseli sagði aðspurður, að rétt norðvestan við Akursel væri hró, sem héti Ytrasel. Annar heim- ildarmaður taldi það vera nokkru utar. Mönnum ber því ekki fyllilega saman um hvar Ytrasel var; ekki er ólíklegt að Akursel hafi á 19. öld verið flutt að rústum Ytrasels, sem var eina umtals- verða eyðibýlið á þessum stað. Með þessar upplýsingar í huga, má gera sér nokkra grein fyrir gangi mála dagana 18.—26. mars 1726 (2. mynd). Hlaupin hafa líklega flætt af mestum þunga niður austanverðan sandinn og klofnað á sandöldum vestan við ármót Sandár og Brunnár. Vesturhlutinn hefur farið niður farveg Jökulsár og breitt úr sér milli Kelduness og Skóga. 168

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.