Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1985, Side 75

Náttúrufræðingurinn - 1985, Side 75
2. mynd. Áætluð útbreiðsla og rennslisleiðir hlaupanna 1725 — 1726. Rennslismynstrið má að nokkru leyti sjá af loftmyndum, en að öðru leyti er stuðst við lýsingu séra Jóns Einarssonar. - Channels made by the jökulhlaups in Öxarfjörður. Austurhlutinn aftur á móti flætt í sveig niður hjá Þverá og Núpi, og kaffært mestallt landið milli Ærlækjarsels og Öxarnúps. Mesta dýpi í Ytraseli og Suðurseli hefur líklega verið 1,5-2 m. Meira hefur það tæplega verið fyrst fólkið komst af, og í grynnra vatni er verulegur jakaburður lítt hugsanlegur. Vatnafróðir menn gætu eflaust reiknað út flóðtoppinn í Sandá ef mælt væri snið af landinu milli Núps og Ær- lækjarsels. Haukur Tómasson, jarðfræðingur, las þessa ritgerð í handriti og reiknaði þá flóðtoppinn út samkvæmt formúlu Mannings og fyrrtöldum upplýsingum. Þarna er að sjálfsögðu um gróft mat að ræða, en niðurstaðan varð 7.500 rúm- metrar á sekúndu, eða svipað og stórt Skeiðarárhlaup. Með hliðsjón af 2. mynd, má álykta að heildarrennsli hlaupsins hafi verið a.m.k. þreföld þessi tala, eða 20—25.000 rúmmetrar á sek. (sjá einnig Sigurvin Elíasson 1980, bls. 20). í Jarðabók Árna Magnússonar (frá 1712), er sagt að bænum í Skógum sé ekki óhætt fyrir Jökulsá í jökulhlaup- 169

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.