Náttúrufræðingurinn - 1985, Qupperneq 77
3. mynd. Víðibakkahorn, horft til norðurs. Áshúsabakki (Ytribakki) í fjarska. Hinn forni
farvegur Jökulsár er skammt vestan við Hornið. Þar rann áin norður með Víðibakkanum
svokallaða. - The ancient channel of Jökulsá, is just west of tlie sand dune in the
foreground. Photolljósm. Sigurjón Páll ísaksson.
brúkaður og eftir blífur, þó skemmdur,
hingað og þangað slægjur svo þeir
nokkuð, þó með stórunr erfiðismunum,
fyrir sína gripi þar af til fóðurs fái, á
meðan svo stendur.
Selaveiði og silungsveiði, sem að
fylgdi greindum plássum, Skógum og
Ærlækjarseli, að fornu og í þeirra ábúð-
artíð, sé nú að öllu leyti frá, sem ogso
hafa orsakað Jökulsárhlaup.
Aðspurðir segja þeir að tjónið hafi
orðið mest á Núpi, enda bendir jarða-
mat, sem gert var haustið 1728, til hins
sama. (Sjá Töflu II). Þó ber að hafa í
huga að tjónið, sem fram kemur í
jarðamatinu, má að einhverju leyti
rekja til eldri hlaupa eða einhverra
annarra orsaka. Frásögn bóndans á
Daðastöðum er athyglisverð. Hann
segir svo frá [3]:
Engjar jarðarinnar (eru) fyrir víst, fullt
að hálfu leyti, í sandhellu og fordjörfun
komnar, sama sé að segja um hagann
þar í kringum liggjandi sem engið var,
og nú eru eftirstöðvar enn þá lítilfjör-
legra engja, sem ogso séu skemmdar.
Eirnin sé verstaða jarðarinnar, sem
nefnist Buðlungahöfn, hartnær orðin
aldeilis ótæk til brúkunar þegar nokkuð
ádámar (aðamar), því þar sem áður
verið hafi fyrir nokkrum árurn tveggja
og þriggja faðma djúpur vogur, og nót-
lög fyrir 3 nætur inná höfninni, þar
jafnan var skipum lent, það pláss sé nú
aldeilis sandur og þurrt land á orðið, og
nú jafnaðarlega riðið og reist um.
Eirnin seigir hann land nálægt
nefndri verstöðu af sandi yfirdrifið og
stórlega spillt, svo þar áður verið hafi
sláandi gras á bökkunum kringum höfn-
ina, sjáist nú valla að segja gras, og svo
víðara þar út í frá. Haginn í sand kom-
171