Náttúrufræðingurinn - 1985, Síða 85
6. mynd. Farvegur Stórár austan Kelduness. Til hægri á myndinni er misgengisstallur
teiknaður inn, en Veggjarendar eru í framhaldi af honum til suðurs. (Loftmynd AMS
13736, tekin 28.08, 1960. Birt með leyfi Landmælinga íslands). - The channel ofthe river
Stórá (big-river). A fault scarp to the right on the photograph. (Aerial photograph
AMS 13736, 28.08, 1960, copyriglu by Landmœlingar íslands, published by permission).
Þegar Þorvaldur Thoroddsen fór um
Kelduhverfi sumarið 1895, skráði
hann munnmæli, sem gengu þar í sveit
um myndun Stórár (Þorvaldur Thor-
oddsen 1959, 322). Hann segir:
Árið 1717 gusu Kverkfjöll, og þá kom
mikið hlaup i Jökulsá. Þá er sagt að
Stórá hafi ummyndast. Það eru munn-
mæli, að þá hafi kíll með sefi legið frá
Byrgi vestur að Keldunesi, og hljóp
Jökulsá í kílinn og vestur í Víkingavatn,
fór yfir allar engjar og stóð upp í miðj-
an skemmuhól hjá bænum Víkinga-
vatni. Var þá farið á skipi frá Víkinga-
vatni austur að Ási. Vatnið stóð lengi á,
en er það rénaði, myndaðist Stórá.
Daginn fyrir hlaupið þornaði Jökulsá.
Síðar ritaði Þorvaldur um eldgos í
Vatnajökli og segir þar (Þorvaldur
Thoroddsen 1924, 41):
Það má vel vera að munnmælin um
hlaupið 1717 séu nokkuð blönduð
endurminningum um hin síðari hlaup,
einkum hlaupin 1729.
179