Náttúrufræðingurinn - 1985, Blaðsíða 49
Ágúst H. Bjarnason:
Skýrsla um
Hið íslenska náttúrufræðifélag
fyrir árið 1984
FÉLAGAR
í árslok 1984 voru skráðir félagar og
kaupendur að Náttúrufræðingnum samtals
1764. Þeir skiptust þannig: Heiðursfélagar
4, kjörfélagar 2, ævifélagar 34, ársfélagar
innanlands 1538, félagar og stofnanir er-
lendis 63 og innlendar stofnanir 123.
Þær breytingar, sem urðu á fjölda fé-
laga, eru þessar: Nýir félagar eru 65 en 114
hurfu úr félaginu (31 sagði sig úr því, 63
voru strikaðir út af félagaskrá vegna van-
goldinna gjalda og 20 eru látnir). Sam-
kvæmt þessum tölum fækkaði félögum og
kaupendum að Náttúrufræðingnum á síð-
asta ári um 49. Sé heildarfjöldinn — 1764
— hins vegar borinn saman við félagatölu
fyrir árið á undan, en þá voru 1802 skráðir
félagar, kemur í ljós að félögum hefur
fækkað en um 38 en ekki 49. Ástæðan fyrir
þessu ósamræmi er sú, að eitthvað fór
úrskeiðis, þá er ákveðið var að skipta um
afgreiðsluhætti og umsjá félagaskrár í
desember 1983 til febrúar 1984.
Eins og áður sagði létust 20 félagsmenn
á síðasta ári. í þeim hópi voru fimm ævifé-
lagar: Árni Þórðarson, fyrrv. skólastjóri,
félagi frá 1942, dr. Ástvaldur Eydal, félagi
frá 1945, Halldór Pálsson, fyrrv. búnaðar-
málastjóri, félagi frá 1941, Jakob Bjarna-
son, bóndi, félagi frá 1920 og Trausti Ein-
arsson, prófessor, félagi frá 1941.
STJÓRN OG STARFSMENN
Núverandi stjórn Hins íslenska náttúru-
fræðifélags var kosin á aðalfundi 1984 og
er þannig skipuð: Formaður: Ágúst H.
Bjarnason, varaformaður: Bergþór Jó-
hannsson, gjaldkeri: Ingólfur Einarsson,
ritari: Axel Kaaber og meðstjórnandi: Jón
Eiríksson. í varastjórn voru kjörin: Ingi-
björg Kaldal og Þór Jakobsson. Endur-
skoðendur: Einar Egilsson og Magnús
Árnason; varaendurskoðandi: Gestur
Guðfinnsson.
Erling Ólafsson, Náttúrufræðistofnun
íslands, var ráðinn á árinu til þess að ann-
ast afgreiðslu tímaritsins, halda félagaskrá,
sjá um innheimtu og ýmislegt annað bæði
stórt og smátt. Ritstjóri Náttúrufræðings-
ins var Helgi Torfason.
Stjórn Minningarsjóðs Eggerts Ólafs-
sonar skipuðu: Guðmundur Eggertsson,
Ingólfur Davíðsson og Sólmundur Einars-
son, sem var gjaldkeri. Óskar Ingimarsson
var varamaður í stjórn sjóðsins.
Stjórnin hélt átta fundi á árinu. Á þeim
var fjallað um málefni félagsins eins og
skylt er og rætt um skipulag fræðslusam-
koma, fræðsluferðir og ýmis önnur mál.
Verður drepið á nokkur hin helstu hér
síðar. Sú nýbreytni, sem reyndar er sjálf-
sögð, var tekin upp í þessu félagi að boða
varamenn í stjórn á hvern fund. Vara-
mennirnir, Ingibjörg og Þór, hafa ekki
síður sótt fundi en aðalmenn, tekið virkan
þátt í störfum til jafns við aðra og veitt
stjórn mikinn styrk. Að auki sótti formað-
ur ýmist einn eða ásamt öðrum úr stjórn
nokkra aðra fundi.
Félagið sendi einn fulltrúa á þing Nátt-
úruverndarráðs og fór Sigurður Snorrason
að þessu sinni. Þá héldu Hrefna Sigurjóns-
dóttir og Þóra E. Þórhallsdóttir sem full-
trúar á aðalfund Landverndar. í dýra-
verndarnefnd sat Sigurður H. Richter af
félagsins hálfu og Agnar Ingólfsson var í
fuglafriðunarnefnd. Flórunefnd skipuðu:
95