Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1985, Blaðsíða 52

Náttúrufræðingurinn - 1985, Blaðsíða 52
september. Leiðbeinendur: Ævar Petersen og Gunnlaugur Pétursson. Þátttakendur: 26. Jarðsprunguferð frá Selfossi um Suður- land 9. september. Sigurfinnur Sigurðsson hafði veg og vanda af undirbúningi ferðar- innar. Leiðbeinendur: Jón Eiríksson og Páll Einarsson. Þátttakendur: 23. Óhætt er að segja, að flestar tókust ferð- irnar með ágætum, þó að þátttaka hefði mátt vera meiri, en tæplega 320 manns sóttu þær. Margir félagar veittu mikilvæga aðstoð við skipulagningu og framkvæmd ferðanna og flytur stjórnin þeim einlægar þakkir fyrir. Nær alltaf var veðrið gott og fagurt, þrátt fyrir að rigningar hafi sjaldan verið meiri a. m. k. hér á Suðurlandi. í allar ferðirnar nema tvær voru fengnir bíl- ar frá Guðmundi Jónassyni hf. Geta má þess hér, að Ferðaskrifstofa Guðmundar Jónassonar hf. veitti félögum í Hinu íslenska náttúrufræðifélagi afslátt á fargjöldum í eigin ferðir og Flugleiðir buðu helmings afslátt í tvær ferðir til Kulusuks. Ekki er kunnugt um, hve margir félagar nýttu sér þessi fríðindi. Vonandi er, að unnt verði að auka þennan þátt til handa félagsmönnum. LJÓSM YND AS AMKEPPNI f fyrsta skipti gekkst stjórnin fyrir ljós- myndasamkeppni meðal félaga. Skila átti inn myndum af einhverjum hryggleysingja eða einni tegund af ætt brönugrasa. Dóm- nefnd skipuðu: Eyþór Einarsson, Jón Eiríksson og Skúli Þór Magnússon, sem var formaður. Tíu félagar sendu inn um 30 myndir. Úrslit urðu þau, að Einar Gísla- son hlaut fyrstu verðlaun fyrir mynd af fiðrildum og Ólafur Jónsson fyrstu verð- laun fyrir mynd af friggjargrasi. Þakka ber öllum, sem hlut áttu að máli, en sérstaklega á Hjálmar Bárðarson þakk- ir skildar, því að hann gaf félaginu tvö eintök af hinni fallegu bók sinni ísland — svipur lands og þjóðar, sem sigurvegar- arnir hlutu í verðlaun. ÚTGÁFUMÁL í febrúar kom 52. árgangur Náttúrufræð- ingsins út í einu hefti. í júní kom 1.—2. hefti 53. árgangs út saman, en því miður urðu tafir á 3.-4. hefti einkum vegna verk- falls prentara. Það kom út 14. febrúar 1985, en nú horfir til hins betra, því að samkvæmt raunhæfri áætlun mun hvert hefti 54. árgangs reka annað og kemur síðasta heftið út í mars eða apríl. Það mun því takast að vinna upp langan hala og koma ritinu á réttan kjöl. Það er mikið fagnaðarefni, því að þrátt fyrir alla aðra starfsemi er það Náttúrufræðingurinn, sem fólk sækist mest eftir. 55. árgangur er þegar vel á veg kominn og nokkuð víst, að hann kemur allur út á árinu 1985. Nokkuð ljóst er, að félagið lendir í eilitlum fjárhagskröggum, þó að árgjaldið hækki eitthvað, en forstjóri Prentsmiðjunnar Odda, Þorgeir Baldurs- son, er allur af vilja gerður til þess að hjálpa upp á sakirnar á meðan við fleytum okkur yfir þennan hjalla. Hins vegar ríður nú á að auka fjölda félaga, enda ætti það að verða auðvelt, þegar ritið kemur reglu- lega út. Vil ég eindregið hvetja alla félags- menn til þess að vinna með okkur í stjórn- inni að því. Þykir mér ekki óraunhæft að stefna að því að afla 500 nýrra félaga á árinu 1985. Á liðnu ári kom 9. árgangur Félagsbréfs- ins út sex sinnum og með hinu sjötta var fylgirit, sem fjallaði um málefni Náttúru- fræðisafns. Um aðra útgáfu var ekki að ræða af hálfu félagsins, ef undan eru skilin fáein fjölrituð blöð um greiningu á steina- og bergtegundum eftir Halldór Kjartansson og ætisveppum eftir Eirík Jensson vegna námskeiða sem voru haldin. Hins vegar er rétt að geta hér um þrennt, sem viðkemur útgáfumálum. í fyrsta lagi er veggmyndin af um 63 íslensk- um plöntutegundum, sem sagt var frá í Félagsbréfi. Eggert Pétursson myndlistar- maður lauk við myndina fyrir skömmu og um þetta leyti er verið að undirbúa prent- un. Myndin er gerð í samvinnu við Ferða- málaráð íslands og er það þakkarvert, að ráðið skuli hafa gert okkur kleift að ráðast 98
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.