Náttúrufræðingurinn - 1985, Blaðsíða 46
könnun. Haustið 1983 fannst 30 kópa
útselslátur í Jökulfjörðum í ísafjarð-
ardjúpi og er ekki vitað til þess að
áður hafi svo margir útselir kæpt þar
(Ragnar Jakobsson, sjómaður, pers.
uppl •) •
Þetta bendir til þess að útselsstofn-
inn sé vaxandi hér við land og útselum
hafi fjölgað við ströndina á síðustu
áratugum. Má hugsanlega rekja þessa
fjölgun til minnkandi veiða og aukn-
ingar á heppilegum kæpingarstöðum,
er afskekktar byggðir lögðust í eyði,
s. s. Hornstrandir og Breiðafjarðar-
eyjar að hluta til. Útselnum virðast
vera búin skilyrði til enn meiri fjölgun-
ar hér við land, því að kæpingarstöðv-
ar aukast enn, því enn þann dag í dag
fara afskekktar sveitir í eyði. Kannanir
á útbreiðslu og dreifingu útselsins við
Bretlandseyjar benda til þess, að það
sé einna helst fjöldi (heildarflatarmál)
nýtanlegra kæpingarstaða, sem setur
útselsstofninum stærðarmörk (Har-
wood og Prime 1978).
ÞAKKIR
Sérstakar þakkir færi ég forráðamönn-
um Þörungavinnslunnar h.f. Reykhólum,
fyrir endurgjaldslaus afnot af bátum verk-
smiðjunnar í leiðöngrum haustið 1981.
Flugmönnunum Magnúsi Helgasyni og
Einari Guðmundssyni þakka ég afburða
flugstjórnarhæfileika og þolgæði við hin
erfiðustu skilyrði. Einnig þakka ég Haf-
steini Guðmundssyni í Flatey fyrir upplýs-
ingar um kópaveiðar í Hergilseyjar-
löndum.
Talning útselskópa úr lofti er eitt þeirra
verkefna er höfundur hefur unnið að á
vegum Hringormanefndar og eru kostuð af
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna, Sambandi
íslenskra samvinnufélaga, Sölusambandi
íslenskra fiskframleiðenda, Coldwater
Seafood Corporation og Icelandic Seafood
Corporation.
HEIMILDIR
Anon. 1982. Seal Stocks in Great Britain
surveys conducted in 1981. — NERC
Newsjournal 3,1 : 8—10.
Bonner, W.N. 1976. The Stocks of Grey
seals (Halichoerus grypus) and Com-
mon seals (Phoca vitiilina) in Great
Britain. — NERC publications series C
16: 16 bls.
Eberhardt, L.L., D.G. Chapman & J.R.
Gilbert. 1979. A Review of Marine
Mammal Census Methods. — Wildlife
Monographs 63. The Wildlife Society,
Inc. Washington D.C.: 46 bls.
Erlingur Hauksson. 1980. Selatalning -
1980. Rannsóknir varðandi hringorma-
vandamálið. Bráðabirgðaskýrsla,
Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins,
Reykjavík: 13 bls.
Erlingur Hauksson. 1985. Fjöldi og út-
breiðsla landsels við ísland. - Náttúru-
fræðingurinn (í prentun).
Harwood, J. & J.H. Prime. 1978. Some
factors affecting the size of British grey
seal populations. — J. Applied Ecol.
15: 401-411.
Hiby, A.R. & J. Harwood. 1979. The
reliability of population estimates for
British grey seals. — ICES N:12. 7 bls.
Sólmundur T. Einarsson. 1978. Selarann-
sóknir og selveiðar. - Náttúrufræðing-
urinn 48, 3—4: 129-141.
Summers, C.F. 1978. Trends in the size of
British grey seal populations, — J. App-
lied Ecol. 15: 395-400.
Teitur Arnlaugsson. 1973. Selir við ísland.
— Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins,
Reykjavík: 26 bls.
Vaughan, R.W. 1971. Aerial photography
in seals research. - í: R. Goodier
(ritstj.). The Application of Aerial
photography to the work of the Nature
Conservancy: 88-98. Proc. of the Nat-
ure Conservancy Staff seminar, Edin-
burgh.
92