Náttúrufræðingurinn - 1985, Blaðsíða 54
Lög
Hins íslenska náttúrufræðifélags
1. gr. Félagið heitir Hið íslenska náttúru-
fræðifélag. Heimili þess og varnarþing er í
Reykjavík.
2. gr. Tilgangur félagsins er að efla íslensk
náttúruvísindi, glæða áhuga og auka þekk-
ingu manna á öllu, er snertir náttúrufræði.
3. gr. Þessum tilgangi leitast félagið við að
ná með því:
a. Að stuðla að vexti og viðgangi
Náttúrugripasafnsins.
b. Að beita sér fyrir því, að haldnir
séu fræðandi fyrirlestrar um náttúru-
fræðileg efni og farnar séu ferðir til
náttúruskoðunar.
c. Að gangast fyrir útgáfu náttúru-
fræðilegra rita.
d. Að vinna að eflingu náttúruvernd-
ar.
4. gr. Félagar geta allir orðið, hvort sem er
hér á landi eða erlendis, með þeim skilyrð-
um, er hér greinir:
a. Ársfélagar, þeir, sem greiða árlegt
félagsgjald.
b. Heiðursfélagar og kjörfélagar,
þeir, sem kjörnir eru á aðalfundi eftir
tillögum stjórnarinnar.
Árgjald og breytingar á því er ákveðið á
aðalfundi.
5. gr. Félagsgjald sitt skal hver nýr félags-
maður greiða við inngöngu í félagið. Ann-
ars skal árgjaldið greitt fyrir lok
marsmánaðar ár hvert.
6. gr. Fimm manna stjórn sér um fram-
kvæmdir félagsins og annast öll málefni
þess. Hver stjórnarmaður er kosinn til
tveggja ára í senn. Formaður er kosinn
sérstaklega, en stjórnin skiptir með sér
verkum að öðru leyti. Annað árið ganga úr
stjórninni formaður og tveir aðrir stjórnar-
menn, en hitt árið tveir stjórnarmenn.
Kosnir eru tveir varamenn í stjórnina ár-
lega, til eins árs.
7. gr. Aðalfund félagsins skal halda í febrú-
ar ár hvert, og skal dagskrá hans vera sem
hér segir:
a. Skýrt frá helstu framkvæmdum á
liðna árinu.
b. Lagðir fram endurskoðaðir reikn-
ingar félagsins.
c. Kosin stjórn og tveir endurskoð-
endur reikninga með skriflegri kosn-
ingu. Auk þess séu kosnir tveir vara-
menn í stjórn og einn varaendurskoð-
andi.
d. Önnur mál.
Aðalfund skal boða bréflega með hæfi-
legum fyrirvara þeim félagsmönnum, sem
búa í Reykjavík og nágrenni. Aðalfundur
er lögmætur, ef löglega er til hans boðað.
Á fundinum ræður einfaldur meirihluti úr-
slitum í öllum málum öðrum en þeim, er
varða lagabreytingar. Til þess að laga-
breytingar öðlist gildi, þurfa þær að vera
samþykktar með minnst % hluta atkvæða.
Tillögu til lagabreytinga má því aðeins
taka til afgreiðslu á aðalfundi, að hún hafi
borist félagsstjórn fyrir áramót og verið
kynnt félagsmönnum í fundarboði. Þó má
hvorki breyta ákvæðum 2. gr. né 10 gr.
8. gr. Félagið gefur út tímaritið Náttúru-
fræðinginn, er félagsmenn fá ókeypis. í
honum skal hvert ár birta skýrslu um starf-
semi og hag félagsins og félagatal fimmta
hvert ár.
9. gr. Þeir, sem gerst hafa ævifélagar fyrir
aðalfund 1969, geta eftir eigin vali fengið
árgang Náttúrufræðingsins fyrir % árgj-
alds, eða sérprentun af skýrslu félagsins
ókeypis.
10. gr. Hætti félagið störfum, skulu eignir
þess renna til Náttúrufræðistofnunar ís-
lands (Náttúrugripasafnsins).
100