Náttúrufræðingurinn - 1985, Blaðsíða 50
Eyþór Einarsson, Hörður Kristinsson og
Jóhann Pálsson.
AÐALFUNDUR
Aðalfundur Hins íslenska náttúrufræðifé-
lags fyrir 1984 var haldinn laugardaginn
16. febrúar 1985. 21 félagi sótti fundinn.
Fundarstjóri var kjörinn Sveinn Jakobsson
og fundarritari Einar Egilsson.
Formaður minntist látinna félagsmanna
og flutti skýrslu stjórnar um störf félagsins.
Gjaldkeri las upp endurskoðaða
reikninga, sem voru samþykktir. Þá var
gengið til kosninga. Að þessu sinni áttu
Axel Kaaber og Jón Eiríksson að ganga úr
stjórn. Þeir gáfu kost á sér áfram og voru
báðir endurkjörnir. í varastjórn voru kjör-
in í annað sinn Ingibjörg Kaldal og Þór
Jakobsson. Einar Egilsson og Magnús
Árnason voru endurkjörnir endur-
skoðendur og Sveinn Ólafsson kosinn
varaendurskoðandi.
Sigurður H. Richter greindi ítarlega frá
störfum í dýraverndarnefnd. Kom hann
víða við og þótti fundarmönnum forvitni-
legt á að hlýða. Síðan var lesin stutt grein-
argerð Agnars Ingólfssonar um störf fugla-
friðunarnefndar.
Á fundinum var samþykkt að hækka ár-
gjald fyrir 1985 í kr. 580. Þá var lítillega
rætt um störf Flórunefndar en engin
skýrsla barst frá henni í þetta sinn. Málefni
Náttúrufræðisafns bar á góma og var svo-
felld ályktun samþykkt samhljóða:
Aðalfundur Hins íslenska náttúru-
fræðifélags haldinn 16. febrúar 1985
skorar á þing og þjóð að efla náttúru-
vísindi í landinu. Það verður best gert
með því að reisa veglegt náttúrufræði-
safn hið fyrsta.
Öld er liðin sfðan framfaramenn
töldu slíkt safn tímabært. íslendingar
eru eftirbátar annarra þjóða í þessum
efnum og eiga stjórnvöld mikla sök á
því, hvernig til hefur tekist til þessa.
Árið 1947 gerði hið opinbera samn-
ing við Hið íslenska náttúrufræðifé-
lag, þar sem það skuldbatt sig til þess
að reisa safnbyggingu. Félagið verður
100 ára 1989. Væri ánægjulegt, ef
náttúrufræðisafn yrði þá vel á veg
komið.
Á aðalfundinum var samþykkt einum
rómi að kjósa dr. Sigurð Pétursson, heið-
ursfélaga fyrir langt og óeigingjarnt starf í
þágu félagsins og Guðbrand Magnússon,
Siglufirði og Sigurð Björnsson, Kvískerj-
um, kjörfélaga fyrir langt og merkilegt
starf á sviði íslenskrar náttúrufræði.
FRÆÐSLUSAMKOMUR
Eins og undanfarin ár voru fræðslusam-
komur haldnar síðasta mánudag í hverjum
mánuði janúar til apríl og október til
nóvember. Vegna verkfalls opinberra
starfsmanna var samkomunni í lok október
frestað til mánudagsins 10. desember.
Eftirtaldar fræðslusamkomur voru
haldnar:
30. janúar:
Sigfús Johnsen: Boranir og rannsóknir
á ískjörnum úr Grænlandsjökli.
27. febrúar:
Svend-Aage Malmberg: Ástand sjávar
og fiskstofnar.
26. mars:
Steindór Steindórsson: Gróðurmörk í
hálendinu að fornu.
30. apríl:
Gylfi Már Guðbergsson: Land og
gróður á gervihnattamyndum.
26. nóvember:
Sigurður Snorrason: Líf í Þingvalla-
vatni.
10. desember:
Magnús Magnússon: Kvikmyndin Fugl-
ar í Mývatnssveit. Arnþór Garðarsson
talaði með myndinni.
Alls komu rúmlega 400 manns á fræðslu-
samkomurnar, 120 þegar flest var en 16
fæstir. Stjórnin flytur öllum, sem lögðu
hönd á plóg, þakkir sínar.
96