Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1947, Page 18

Náttúrufræðingurinn - 1947, Page 18
110 NÁT TÚRUFRÆÐINGURINN getur það stundum verið mjög til óhagræðis. Harpixgangarnir í furuviði eru þéttir og tiltölulega stórir. Ungar furur eru sums staðar, t. d. hér á landi. notaðar með öllum greinum og barri um jólaleitið til skrauts, og eru það hin svonefndu jólatré, en ung grenitré eru einnig notuð í sama skyni. Greni er viðurinn af trjám, sem Iieyra Picea-ættkvíslinni til, en einnig af fagurgreni, douglasgreni og hemlockgreni. Eru allar þessar trjátegundir barrtré eins og fururnar, en ekki fæst greniviður af jafnmörgum trjátegundum og furuviður. í F.vrópu er rauðgreni (P. abies) mikilsverðasta grenitréð. Nær tréð ekki fullum hæðar- vexti, fyrr en það er orðið 100 ára gamalt, og getur þá verið 35 m að hæð, en lifað getur það enn mörg hundruð ár, jafnvel orðið 500 ára gamalt. Stofn trésins er frekar beinvaxinn, óskiptur og vel sívalur. Börkurinn er frekar þunnur, og er hann sléttur, meðan tréð er ungt. Oft loða við Iiann næfurþuniiar, rauðbrúnar. óreglulega lagaðar flygsur, sem síðar verða gráleitar, og koma þá jafnfram í þær rifur. Viðurinn er hvítur eða lítið eitt gulleitur og gljáandi, en verður brátt grár, þegar loft fær að leika um liann, og hvað lit snertir, er enginn munur á afhöggi og kjarnavið. Eðlisþyngd hans er 0,48—0,51, þegar hann er loftþurr. Viðurinn er mjúkur, frekar grófgerður, og er auðvelt að smíða úr honum. Hann þolir verr raka en fura, eink- um þó ef hann blotnar og þornár til skiptis. Hann er mikið notaður í símastaura, í umbúðir, til bygginga, í trjáviðarslíp og viðarull og til framleiðslu á sellulósa, en grenibörkurinn er notaður til sútunar, Greinar og afhögg er notað til framleiðslu viðarkola og viðartjöru. Hvítgreni (P. alba) gefur af sér sterkan við, en stofninn er oft boginn, svo að ekki er mikið um ræktun jiess til trjáviðarframleiðslu. Hins vegar fæst góður viður af sitkagreni (P. sitchensis), sem er fljótvaxið og harðgert. Viðurinn er mjúkur, léttur og þéttur, en ekki mjög sterkur. — Fagurgreni (Abies pectinata) er mjög hávaxið, getur orðið allt að 60 m á hæð, og er stofninn þá orðinn yfir metra að þvermáli. Viðurinn er ljósgulleitur, oft með rauðleituin blæ, og er kjarna- viðurinn ekki dekkri en afhöggið, ef tréð er heilbrigt. Á sjúkum trjám er hann stundum Ijósbrúnn að lit, þegar trén eru orðin gömul. Viðurinn inniheldur lítið af harpix, er mjúkur og léttur, klofnar vel og er sæmilega endingargóður, en þolir þó illa að blotna og þorna til skiptis. Hann er að mestu leyti notaður til liins santa og viðurinn af rauðgreni. — Dotiglasgreni (Pseudotsuga douglasii == Pseudotsuga mucronata) er mjög stórvaxið, getur orðið um 100 m að hæð og yfir

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.