Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1947, Síða 21

Náttúrufræðingurinn - 1947, Síða 21
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 113 nota á trjáviðinn. Niðursagaður trjáviðurinn er nefndur timbur. það timbur, sem notað er til húsbygginga og annarra mannvirkja, er oftast nær sagað niður í ferhyrnda bita, planka eða borð, og eru það þá talin borð, sem eru þynnri en 5 cm (2 enskir þumlungar — 2"), en þó þykkari en 2 mm, plankar eru 5—10 cm (2—4") að þykkt, en bitar þykkari en 10 cm. Breiddin er mjög misjöfn. Sjaldan er hún þó meiri en 40 cm (16"). Þegar liúsgögn eru smíðuð, er algengt að líma þunnar flögur af verðmætum viðartegunum utan á aðrar ódýrari viðartegundir, og eru þessar viðarflögur nefndar spónn (finér). Spónlagningin er þó ekki eingöngu gerð í sparnaðarskyni, heldur oft einnig vegna ann- arra ástæðna, því að viður, sem vel lítur út, er stundum hvorki sterkur né endingargóður. Má þá velja sterkan og endingargóðan við innan undir spóninn, og fæst þá livort tveggja í senn, gott útlit iiúsgagnanna og nægilegur styrkleiki. Spónninn er annaðhvort sag- aður eða skorinn úr trjástofninum, en að því búnu venjulegast hefl- aður og fægður, svo að hægt sé að nota hann til spónlagningar án frekari aðgerða. Þykktin er allmisjöfn. Algengastur er 0,2—0,8 mm þykkur spónn, en séu viðarflögurnar þykkari en 2 mm, geta þær ekki talizt spónn lengur. Trjáviður getur enzt svo, að öldum skipti, ef lionum er haldið nægilega þurrum, en þó eru tegundirnar nokkuð misjafnar, Iivað þetta snertir. Einstaka trjáviðartegund þolir raka allvel, jafnvel þola sumar að blotna og þorna á víxl. Við slík skilyrði er þó ending allra trjáviðartegunda mjög takmörkuð, enda þótt ein trjáviðartegundin endist einum eða nokkrum áratugum lengur en önnur. Eru ágæt skilyrði fyrir gerla og annan smáverugróður að setjast að í viðnum, ef hann blotnar og þornar á víxl. En fyrir álirif slíks smáverugróð- urs fúnar tréð og eyðileggst, verður haldlítið og meyrt. Oft eru gró slíks smáverugróðurs í hinu lifandi tré, einkurn þó, ef viðurinn er af gömlum trjám, því að slík tré eru oft byrjuð að rotna í kjarnanum. Gætir þessa sérstaklega, ef tréð liefur verið toppskorið eða stórar greinar hafa brotnað af þvi eða verið sagaðar af því. Er mergkjarn- inn gljúpasti hluti trésins, og hefur smáverugróður getað borizt eftir honum. Tegundirnar, sem geta grandað viðnum, eru fjölda- margar, en fljótvirkastur er hússveppurinn (Serpula lacrymans). Getur hann eyðiiagt viðinn í lieilli byggingu á skömmum tíma, ef ]ífsskilyrðin eru góð fyrir liann, ef rakinn er hæfilegur, lítið um endurnýjun loftsins o. s. frv. Sést hann fyrst sem livít, þunn hirnna 8

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.