Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1947, Síða 23

Náttúrufræðingurinn - 1947, Síða 23
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 115 hefur legið í vatni nokkurn tíma, t. d. þeim viði, sem hefur verið fleytt niður eftir fljótum. Stofnunum eða bitunum er ekið inu í stóra sívalninga, sem loka má loftþétt og þola mikinn þrýsting. Er loftinu fyrst dælt úr sívalningnum, en síðan er hann fylltur með varnarefninu, t. d. kreósótolíu, sem haft er 70—80°C, þrýstingurinn hækkaður um nokkra loftþunga og allt látið vera við það í 1—2 klst. Þá erþeirri olíu, sem ofaukið var, dælt burtu. Hægt er að spara mik- ið af varnarefni með því að setja viðinn undir 4—5-faldan loftþrýst- ing rétt áður en olíunni er þrýst inn í hann. Safnast þá dálítið af lofti fyrir í viðnum, og er það nóg til þess að þrýsta því af varnarefn- inu út úr viðuum aftur, sem ofaukið er, þegar þrýstingnunr er hleypt af, og dálítill tími látinn líða. Með þeim hætti má spara meira en helming varnarefnisins. Sá viður, sem er gegnbleyttur með lieppilegu varnarefni, endist miklu lengur en liann hefði annars gert, jafnvel mörgurn sinnum lengur. Algeng aðferð til að verja við gegn áhrifum viuda og veðurs er að Jrekja hann með þunnri himnu af vatnsheldu efni, einkum olíu- málningu eða olíulakki. Er oft allmikið gagn að því, en Jrað er Jró oftast nær ekki síður gert í fegurðar skyui. Þeim vörnum verður Jró ekki við komið, ef viðurinn liggur í jörðu. Ýmis sjávardýr valda oft miklu tjóni á trjávið í bryggjum og öðrum mannvirkjum, sem stöðugt standa í sjó, trjávið, sem stendur í ósöltu vatni er miklu síður liætta búin. Eru dýr Jressi margs konar, en hér við land er einkum um tvær tegundir að ræða, sem báðar lifa einung- is í söltu vatni. Annað er krabbadýr, sem nefnt er tréæta (Limnoria lignorum), en lútt lindýr, sem nefnt er trémaðkur (Terdo norvegica). Sjávardýr Jressi geta oft eyðilagt mikil mannvirki á skömmum tíma. Til að verja viðinn Jressum skaðdýrum er hann oft gegnbleyttur með varnarelnum. En einnig má Jrekja hann með máhnþynnum eða öðru í varnar skyni eða negla í hann járnnöglum með stuttu millibili, og er oft mikið gagn að því. Þegar járnnaglar eru notaðir, ryðga Jieir brátt, einkum í greniviði, og þurfa ryðblettirnir umhverfis naglana að ná saman. Af ryðinu verður viðurinn harður á yfirborðinu, og geta dýrin þá ekki étið sig inn í hann. Trjáviði er allhætt við að verpast eða rifria, Jregar hann fer að þorna eða eldast, og getur oft hlotizt mikið ijón af Jrví. Með þurrk- un og gufusuðu er reynt að hamla gegn Jrví, en mikið gagn er einnig að því að saga viðinn niður í þunnar plötur og líma tvær eða fleiri

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.