Náttúrufræðingurinn - 1947, Qupperneq 30
NÁT l’ÚRUFRÆÐINGURINN
1£2
Villilín (Linum catharticum). Klofningur og vestur eftir, en vant-
ar í Saurbæinn og Ásgarðshverfið.
Síkjabrúða (Callitriche liamulata). Krossmýrar, Lambanes í Saur-
bæ.
Baunagras (Lathyrus maritimus). Ásgarður við sjóinn.
Reynir (Sorbus aucuparia). Við Sælingsdalsá.
Umfeðmingur (Vicia cracca). Lambanes og Náðarmór í Saurbæ.
Fjalladúnurt (Epilobium anagallidifolium). Ulviti og Klofnings-
fjall.
Kúmen (Carum carvi). Tindur, Hnjúkur, Stakkaberg.
Sæhvönn (Haloscias scoticum). Salthólmavík, Skerðingsstaðir.
Mosalyng (Cassiope hypnoides). Sveinsstaðafjall, Klofningsfjall.
Sortulyng Arctostaphylus uva ursi). Víða.
Skriðdepla (Veronica scutellata). Krossmýrar, Ásgarður, Dagverð-
arnes og Lambanes.
Tröllastakkur (Pedicularis flammea). Víða til fjalla.
Græðisúra (Plantago major). Laugar, Salthólmavík, Tjaldanes
og Staðarfell.
Sandmunablóm (Myosotis micrantha). Stakkaberg.
Bláklukka (Campanula rotundifolia). Tindur, Búðardalur (bónda-
bærinn).
(Beitilyng (Calluna vulgaris) fann ég ekki, en mér var sagt, að það
væri til í Skarðsskógi og Sælingsdal. Vel má það satt vera, en að
minnsta kosti er það mjög fágætt á þessum slóðum)
III
Fyrri liluta ágústmánaðar 1947 fórum við magister Jolis. Gr0nt-
ved grasaferð til Húnaflóastranda. Ferðuðumst við um Steingrims-
fjörð (einkum nágrenni Hólmavíkur, Staðardal og Grímsey á Stein-
grímsfirði), Bjarnarfjörð, Asparvíkurdal og Kaldbaksvík. Voru jrau
svæði lítt könnuð áður gróðurfarslega, sbr. ritið Gróður (á Vestfjörð-
um) eftir Steindór Steindórsson — Reykjavík 1946. Bergþór Jóhanns-
son í Goðdal liefur birt tvo jurtalista úr Goðdal og grennd, hinn
fyrri í 4. hefti Náttúrufræðingsins 1946, og hinn síðari kemnr vænt-
anlega í 4. hefti sama rits 1947.
Skal hér talið hið helzta, sem við Grpntved fundum í Steingrims-
firði, Bjarnarfirði, Asparvíkurdal og Kaldbaksvik:
Tungljurt (Botrychium lunaria). Víða. Mjög þroskaleg.