Náttúrufræðingurinn - 1947, Qupperneq 37
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
129
Engjarós (Comarum palustre). Alg.
Fjallasmári (Sibbaldia procumbens). Alg. Vex alveg niður við sjó.
Ljónslappi (Alchemilla alpina). Alg.
Maríustakkur (A. minor). Alg.
Hnoðamaríustakkur (A. glomerulans). Hér og hvar.
Silfurmaríustakkur (A. acutidens). Staður.
Hrútaberjalyng (Rubus saxatilis). Víða.
Jarðarberjalyng (Fragaria vesca). Staðarhlíð. Lítið. Ný tegund á
Vestfjörðum.
Holtasóley (Dryas octopetala). Alg.
Reynir (Sorbus aucuparia). Hér og hvar í kjarri.
Umfeðmingur (Vicia cracca). Skeljavík. Mikið í brekkum.
Hvítsmári (Trifolium repens). Hér og hvar í túnum. Lítið.
Eyrarrós (Chamaenerion latifolium). Staðaráreyrar, Seláreyrar,
Kaldbaksvík.
Sigurskúfur (C. angustifolium). Hrólfsmýrarklettar, Staðargil, Ara-
tunga.
Klappadúnurt (Epilobium collinum). Asparvíkurdalur, Staður.
Mýradúnurt (E. palustre). Víða.
Lindadúnurt (E. alsinifolium). Allvíða.
Fjalladúnurt (E. anagallidifolium). Hér og hvar til fjalla.
Ljósadúnurt (E. lactiflorum). Staðarhlíð, Svanshóll, Asparvík,
Kaldbaksvík.
Síkjamari (Myriophyllum alterniflorum). Hér og hvar.
Lófótur (Hippuris vulgaris). Allvíða.
Skollaber (Cornus suecica). Káldrananeshjallar og Bjarnarfjörður
hér og hvar, Staðarldíð, Asparvíkurdalur og Kaldbaksvík. Óvíða
mikið af þeim og viðast óblómguð nema í Kaldrananeshjöllum.
Geithvönn (Angelica silvestris). Allvíða í giljum og kjarri.,
Ætihvönn (Arcliangelica officinalis). Hér og hvar, einkum við bæi.
Kúmen (Carum carvi). Goðdalur (Jóhann Kristmundsson).
Klukkublóm (Pirola minor). Allvíða.
Vetrarlaukur (P. secunda). Staðarhlíð í kjarrjaðri.
Mosalyng (Cassiope liypnoides). Allvíða til fjalla.
(Beitilyng (Calluna vulgaris). Ég fann ekki beitilyng, en Guð-
brandur Magnússon kennari kvað iiafa fundið það á Farmanns-
dal fyrir allmörgum árum.)
Sortulyng (Arctostaphylus uva ursi). Hér og hvar, en víðast mjög
lítið í stað.