Náttúrufræðingurinn - 1947, Qupperneq 40
132
NÁTTÚRUFRÆCINGURINN
litlu ofar eru breiður af blálilju (Mertensia maritima) og hrím-
blöðku (Atriplex glabriuscula). Skarfakál (Cochlearia officinalis) vex
víða í fjöruklungri og á klettastöllum rétt lijá. Ofan við fjöruna er
kafgras. Þar eru aðaljurtir: túnvingull (Festuca rubra var. arenaria),
vallarsveifgras (Poa pratensis), baldursbrá (Matricaria inodora) á
blettum og ennfremur túnfífill, kattartunga (fuglatunga), hjartarfi,
haugarfi, brennisóley, njóli og túnsúra.
/ klettunum, neðan til á suðvesturenda eyjarinnar, vaxa einkum:
vegarfi (Cerastium caespitosum), geldingahnappur (Armeria vul-
garis), túnvingull (Festuca rubra), vallarsveifgras (Poa pratensis),
fjallsveifgras (Poa alpina) og sjávarfitjungur (Puccinellia maritima),
einkum í sprungum, og ennfremur skarfakál, kattartunga, tóugras,
hrútaber, blágresi, burnirót, lækjadepla, mýrelfting, tágamura, skrið-
língresi, axhæra og gullvöndur.
í dálitilli brekku rétt hjá vex mikið af skarifífli (Leontodon autum-
nalis), brennisóley (Ranunculus acer), stinnastör (Carex rigida) og
augnfró (Euphrasia frigida) innan um vallarsveifgras (Poa pratensis)
og túnvingul (Festuca rubra).
Efst við klettana vaxa: músareyra, vorperla, tungljurt, hvítmaðra,
blóðberg, lógresi, klóelfting, maríuvöndur, týsfjóla, þursaskegg,
helluhnoðri, lokasjóður, maríustakkur, blágfesi rétt undir klettun-
um, lækjadepla, brennisóley, túnsúra, reyrgresi, skriðlingresi ogskari-
fífill. Þarna er önnur brekka, vaxin skriðlingresi (Agrostis stoloni-
fera) og týtulingresi (A. canina) áðallega, en innan um vaxa vall-
hæra, lambagras, grávorblóm, dýragras og jakobsfífill á strjálingi.
Efst. i sjálfum klettunum ofan við brekkuna vaxa: melskriðna-
lilóm (Cardaminopsis petraea), þúfusteinbrjótur (Saxifraga groen-
landica), gulmaðra (Galium verum), kornsúra (Polygonum vivipar-
um), smjörlauf (Salix herbacea), meyjarauga (Sedum villosum),
fjallafoxgras (Phleum alpinum), ilmreyr (Antlioxanthum odora-
tum), lilásveifgras (Poa glauca), ljónslapjii (Alchemilla alpina),
brjóstagras (Thalictrum alpinum), melur (Elymus arenarius), ólafs-
súra (Oxyria digyna), haugarfi (Stellaria media), blóðarfi (Polygonum
aviculare), tungljurt (Botrychium lunaria) og tóugras (Cystopteris
fragilis).
Á norðaustanverðri eynni eru grasbrekkur. Þar vaxa einkum:
vallarsveifgras (Poa pratensis) og hásveifgras (Poa trivialis). Talsvert
er af gulmöðru (Galium verum) og hrútaberjalyngi (Rubus saxa-
tilis). Á víð og dreif vaxá: mýrfjóla, sandnnmablóm, móasef, (lækjaiv