Náttúrufræðingurinn - 1947, Page 44
136
NATTURUFRÆÐINGURINN
nokkrir liagleiks- og kunnáttumenn um útbúnað og tækni til slíkra
ferðalaga. Eftir heimkomuna til Noregs skrifaði foringi fararinnar,
Erling Cliristophersen grasafræðingur, bók unt leiðangurinn. Eg lief
aðeins séð liana í sænskri þýðingu: Tristan da Cunha — Den en-
samtna ön, Stockholm 1946. Bókin er ferðasaga og bráðbirgða-
skýrsla um rannsóknir þeirra félaga, prýðilega samin við alþýðu-
hæfi. Slíkar bækur eru löngum skemmtilegar, en þessi er einhver
hin bezta, sem ég hef lesið. Hún er bersýnilega skrifuð til að fræða
lesendurna og skemmta þeim, en ekki til að trana fram afreksverkum
Iiinna vösku leiðangursmanna. Auk Christophersens, sem er aðal-
höfundur bókarinnar, hafa flestir vísindamenn leiðangursins ski ifað
í hana kafla um sínar rannsóknir. Þó að náttúra Tristanseyjar sé
hin merkilegasta og ágætlega lýst í bókinni, býst ég við, að mörg-
um þyki fróðlegastir þeir kaflar hennar, sem segja frá eyjarskeggjum
sjálfum, þessum tæplega 200 manna hóp úti í reginhafi.
Það, sem hér fer á eftir um Tristansey er því nær allt tekið upp
úr þessari bók.
Tristansey er efri hluti geysimikils strýtumyndaðs eldfjalls, sem
stendur á liafsbotni. Hrin er því nær kringlótt og aðeins 12 km að
þvermáli, en samt rís hæsti tindur hennar 2028 m upp yfir sjó,
samkvæmt mælingu leiðangursmanna. I il samanburðar má geta
þess, að Snæfellsjökull er ívið víðáttumeira fjall (um 15 km að
þvermáli) og þó ekki nerna 1446 m y. s. Á hátindi Tristanseyjar
er gamall eldgígur með tjörn í botni. Úr þeim gíg hafa komið
stærstu eldgosin, sem hlóðu upp eyna, en margir sníkjugígar liggja
í röðum út frá aðalgígnum niðri í hlíðunum. Allt fast berg í eynni
er einhvers konar storka, mest basalthraun og basalttúff, en innskot
finnast einnig, t. d. gabbróafbrigði. Erfitt er að gizka á aldur jressa
bergs, því að steingervingar fundust engir. Hið eina, sem gat gefið
jarðfræðingi leiðangursins, J. C. Dunne frá Suður-Afríku, nokkia
hugmynd um aldur eldfjallsins, var dýpt giljanna í hlíðun þess og
liæð sjávarbjarganna hringinn í kring. En hvort tveggjá er verk vatns
og veðra, sem naga látlaust utan úr eynni og vinna að því að jafna
hana við sjávarflöt. Gilin eru mörg og stór og björgin 300—600 m
há. Dunne telur, að Jressar myndanir hafi tekið margar milljónir
ára, og gizkar á, að aldur eyjarinnar sé nálægt 20 milljónum ára.
Samkvæmt Jiví hefði hún átt að vera í smíðum á ofanverðum tertíer-
tímanum, en þó áður en Tjörneslögin mynduðust hér á landi.
Jökulminja frá ísöld er ekki getið á Tristansey, enda varla við Jreim