Náttúrufræðingurinn - 1949, Blaðsíða 9
GUÐNI GUÐJONSSON
mag. scient.
MINNINGARORÐ
Þau harmsáru tíðindi urðu heyrinkunn að morgni gamlársdags,
að Guðni Guðjónsson grasafræðingur væri látinn. Glaður og reifur
vann hann með samstarfsmönnum sínum daginn áður að flutningi
náttúrugripasafnsins í ný luisakynni. Kenndi hann sér jrá skyndi-
lega meins og var strax fluttur á spítala. Ekki varð neinum lækning-
um við komið, og lézt hann af hjartabilun aðfaranótt gamlársdags.
Með honum er fallinn í valinn víðmenntaðasti grasafræðingur okk-
ar, sem þegar hafði sýnt, að af lionum mátti vænta heilladrjúgs starfs
í þágu íslenzkra náttúruvísinda.
ísalands
óhamingju
verður allt að vopni;
eldur úr iðrum jæss,
ár úr fjöllum
breiðum ltyggðum eyða.
Ævi Guðna Guðjónssonar er tengd tveim höfuðborgum, Reykja-
vík og Kaupmannahöfn. Hann fæddist í Reykjavík 18. júlí 1913 og
lauk skólanámi við Menntaskólann tuttugu árum síðar, vorið 1933.
Þegar um haustið það ár sigldi liann til Hafnar og dvaldist j)ar sam-
felli í 15 ár, fyrst við nám, en síðan við framhald jteirra rannsókna,
er hann hóf á stúdentsárum sínum.
Síðastliðið sumar fluttist hann búferlum til Reykjavíkur og var
með kappi og sjálfstrausti jtroskaðs vísindamanns að hefja nýjan
áfanga í starfi sínu og lífi. Vinum hans þótti öllum giftusamlega
liorfa um framtíð hans og jjeirra rannsókna. er honum yar ætlað að
veita forstöðu.
Guðni var sonur lijónanna Guðnýjar Guðnadóttur og Guðjóns