Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1968, Blaðsíða 10

Náttúrufræðingurinn - 1968, Blaðsíða 10
56 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN og þá einkum Jón Eiriksson og Gerhard Schöning prófessor. Ferða- bókin kom út á dönsku 1772 í tveimur bindum, hin vandaðasta að öllum frágangi og er enn prýði í hverju bókasafni. Hún er prýdd fjölda mynda, sem gerðar eru eftir frummyndum þeirra Eggerts, og henni fylgir Uppdráttur íslands, betri en þeir eldri, en í honum átti Eggert engan þátt. Fullur titill Ferðabókarinnar er: Vice-Lavmand Eggert Olafsens og Land-Physici Biarne Povel- sens Rejse igiennem Island. Foranstaltet af Videnskabernes Selskab i Kiöbenhavn, og beskreven af forbemeldte Eggert Olafsen...... Soröe 1772. Efnisskipan og form Ferðabókarinnar gera liana að ýmsu leyti óaðgengilega sem landslýsingu. Henni er skipt í 7 parta eftir lands- hlutum, verða óhjákvæmilega af því nokkrar endurtekningar, og ef menn vilja kynna sér þar eitthvert sérstakt efni, þarf víða að leita í bókinni að því. Úr þessu bætir þó verulega, að niðurskipan bókarhlutanna og fyrirsagnir undirkafla eru að mestu hinar sömu og í sömu röð, nema þar sem eitthvað nýtt bætist inn í, svo sem sérstakir ferðaþættir. Ferðabókin er jöfnum höndum landslýsing og ferðasaga. Að vísu er hinum venjulegu ferðum lýst mjög stutt- lega, lítið meira sagt en hvar var farið yfir. Hins vegar eru ein- stakar ferðir, svo sem fjall- og jökulgöngur, raktar mjög nákvæm- lega. I hverjum meginkafla er greinagóð lýsing af landslagi, jarð- myndunum, hverurn og laugum, ám og vötnum, gróðri, dýralífi, fólkinu, atvinnuháttum þess, daglegu lífi, klæðaburði, skemmtun- um o. s. frv. Þá er lýst nýtilegum höfnum, og öllu, sem sérkennilegt var í náttúrufari eða lífi fólksins á hverjum stað. Víða er vitnað til fornrita og sagna. Gegnir furðu, hve gífurlegum fróðleik þarna er samansafnað, og hve vel er úr honum unnið, þar sem um frum- smíð er að ræða, og ekki við nokkrar fyrirmyndir að styðjast inn- lendar né erlendar. Mun vafasamt, hvort þá hefur verið til svo ná- kvæm og fjölþætt lýsing af nokkru öðru Evrópulandi. Eins og kunnugt er, voru náttúruvísindin mjög í bernsku um þessar mundir. Geldur Ferðabókin þess frá voru sjónarmiði. En þótt hinar nú úreltu fræðikenningar séu höfundi fjötur um fót, bæta hinar skörpu athuganir og nákvæmu lýsingar þar oft úr skák, svo að hið rétta kemur fram. Þannig skiptir Ferðabókin fjöllum í regluleg og óregluleg fjöll, þ. e. blágrýtis- og móbergsfjöll eftir vorum nafngiftum, en svo vel er frá lýsingum og skilgreiningum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.