Náttúrufræðingurinn - 1968, Blaðsíða 40
NÁTTÚRUI-RÆÐINGURINN
8(5
lega reynir því meir á landafræðiþekkingu jarðfræðikennara
menntaskólanna framvegis en til þessa.
Ég hef vitanlega ekkert umboð til að bjóða mönnum störf við
kennslu í menntaskólum — og því síður í kennaraskóla — en mér
sýnist, að flestir muni skólarnir bráðlega þurfa á jarðfræðingum
að halda sem föstum kennurum.
Til kennara við menntaskóla eru þær kröfur gerðar, að þeir
liafi lokið fullgildu háskólaprófi í einni eða fleiri kennslugreinum
og hafi auk þess lokið námskeiðum í uppeldis- og kennslufræðum,
þótt kennaraskorturinn undanfarin ár hafi oft verið slikur, að
ekki hafi þótt stætt á að ganga of hart eftir síðara skilyrðinu.
Síðastur manna mun ég verða til að lofsyngja núverandi fjár-
hagskjör menntaskólakennara, en að meðaltali eru háskólamennt-
aðir náttúrufræðingar í annarri ríkisþjónustu minnst tveimur
launaflokkum ofar þeim, og eru þessir menn ]ró svo sannarlega
hvergi öfundsverðir af kjörum sínum. Bent hefur verið á langt
sumarleyfi kennara, en í reynd vill talsvert af þessu leyfi fara í
ýmis störf á vegum skólanna, oft óborguð. Að minnsta kosti ættu
verðandi jarðfræðikennarar við menntaskólana að vera við því
búnir að ódrýgja sumarleyfi sitt með ýmsum skipulagsstörfum í
sambandi við nýskipun kennslunnar og skipulag nýrra deilda, allt
hin nauðsynlegustu störf að vísu, og jafnvel stundum skemmtileg.
Á móti klénum launakjörum vil ég nefna, að starfsaðstaða nátt-
úrufræðikennara við íslenzka menntaskóla fer batnandi. Þótt ekki
blási byrlega um sinn um húsnæðismál menntaskólanna, fer notkun
á sérkennslustofum og kennslutækjum í náttúrufræði og skyldum
greinum í vöxt.
Kennslustörf eiga ekki jafnvel við alla, en mörgum liel’ur reynzt
kennsla lífrænt starf og þakklátt.
Nánari upplýsingar um starfsskilyrði og mannaþörf einstakra
skóla veita skólastjórar þeirra og náttúrufræðikennarar.
Við Menntaskólann á Akureyri:
Steindór Steindórsson skólameistari, Menntaskólanum á Akureyri.
Við Menntashólann að Laugaruatni:
Jóhann S. Hannesson skólameistari, Menntaskólanum að Laugarvatni
°g
Allreð Árnason menntaskólakennari, Menntaskólanum að Laugarvatni