Náttúrufræðingurinn - 1968, Side 29
NÁTTÚRUFRÆÐTNGURINN
75
1. mynd. Jarðeldarannsóknastöð utan í eldfjallinu Sakurajima, syðst á eynni
Kjúsjú í Japan. Húsið er byggt með tilliti til jarðskjálftahættu. Maðurinn á
myndinni er forstöðumaður stöðvarinnar, dr. Yoshikawa. — Ljósm. Sigurður
Þórarinsson, 10. nóv. 1964.
verður að koma á þau einhverju skynsamlegu heildarskipulagi sam-
tímis því að jarðeldarannsóknastöð verður skipulögð.
í bráðabirgðaumræðum um þetta mál hefur verið rætt um að
þessi rannsóknarstöð yrði stofnun, sem gæti tekið við ákveðinni
tölu vísindamannaefna frá hverju aðildarlanda, t. d. 1 eða 2 frá
hverju landi og einhverjum frá Unesco. Yrðu þessir vísindamenn
styrkþegar viðkomandi landa, en löndin (og Unesco) yrðu einnig
að greiða stofnkostnað (þar með tækjakostnað) og reksturskostnað
í hlutfalli við tölu þeirra styrkþega, sem þeir vildu tryggja aðgang
að stofnuninni. Þátttakendur auk Norðurlanda og Unesco gætu
l'yrst og fremst orðið lönd, er liggja að Norður-Atlantshafi, og hafa
Bretland, Kanada og Bandaríkin látið í ljós mikinn áhuga á þátt-
töku, enda þótt stofnunin yrði fyrst og fremst norræn og yfirstjórn
í reynd í höndum íslendinga, jrótt þar verði einnig samnorræn
stjórnarnefnd svipað og er um Norræna húsið. Hversu margir ís-
lenzkir vísindamenn fengju rannsóknaraðstöðu við þessa stofnun,