Náttúrufræðingurinn - 1968, Síða 23
NATTÚRUFRÆÐIN GURINN
69
um er stundum líkt við lótusblóm.
Ekki eru öll lótusblóm sömu ættar, sbr. hin fyrrnefndu frá
Egyptalandi og Indlandi og Nelumbolótusblómið frá Japan og
Kína.
Allmargir íslendingar hafa séð nykurrósir og lótusblóm erlendis
í vötnum og gróðurhúsum. Sennilega er hægt að rækta hér í garð-
tjörnum norrænar nykurrósir og bastarða, a. m. k. þar sem fært er
að ylja tjarnirnar með hlýju laugavatni.
Fiskar og fiskveiðar við ísland og i Norðaustur-Atlantshafi.
Texti: Bent J. Muus. Teikningar: Preben Dahlström. Jón Jónsson þýddi og
staðíærði. Útg. Almenna bókafélagið, Reykjavík, 1968.
Bók þessi er sniðin eftir hliðstæðum útgáfum, er birzt hafa á
dönsku, norsku, þýzku o. fl. málum, en þýðandi hefur þó bætt inn
í hana köflurn, er varða íslenzkar nytjafiskategundir og fiskveiðar
við fsland. Hefur þá annað verið fellt úr, sem minni þýðingu hefur
fyrir íslendinga.
Bókinni er skipt í nokkra kafla. Fyrst er almenn lýsing á fiski,
bæði útliti og innri gerð. Síðan er kafli um lifnaðarhætti fiska og
örstutt ágrip af haffræði. Þá koma greiningarlyklar yfir hinar ýrnsu
tegundir og loks tegundalýsingar. Aftast er svo nafnaskrá.
Fjöldi litmynda prýðir bókina, sem er hin snotrasta að öllum
frágangi, sett í Lithoprenti, en prentuð og bundin í Danmörku.