Náttúrufræðingurinn - 1968, Side 47
NÁTTÚRUFRÆÐIN GURINN
93
3. mynd. Gufuhver í Kverkfjöllum. Ljósm. Edvard Sigurgeirsson.
var ekki fastráðinn til deildarinnar fyrr en 1958. Fram að þeim
tíma voru jarðfræðilegir ráðunautar fengnir frá öðrum stofnunum.
Verkefni deildarinnar voru einkum jarðhitaleit, jarðboranir og
rannsóknir, sem miðuðu að hagnýtingu jarðhita til orkuvinnslu
og iðnaðar. Mætti þar nefna efnavinnslu úr sjó, brennisteinsvinnslu,
þaramjölsvinnslu og áætlanir um gufurafstöðvar. Á fyrri hluta þessa
áratugs urðu hins vegar nokkrar breytingar á löstu starfsliði deild-
arinnar vegna utanaðkomandi orsaka. Leiddi þetta m. a. til þess,
að áherzla á einstaka liði starfseminnar breyttist. Verkfræðileg
vinna færðist í auknum mæli til sjálfstæðra fyrirtækja, en áherzla á
undirstöðurannsóknir fór vaxandi. í núverandi starfsliði eru 1 véla-
verkfræðingur, 1 námaverkfræðingur, 3 jarðfræðingar og 2 jarð-
eðlisfræðingar. Starfsemi deildarinnar má nú greina í tvo megin-
þætti, annars vegar rannsóknastarfsemi og hins vegar ráðgjafa-
starfsemi á sviði jarðhitamála. Rekstur jarðhitasvæða ríkisins hefur
einnig verið falinn jarðhitadeild, og má búast við, að sú starfsemi
fari vaxandi með aukinni hagnýtingu jarðhitans.