Náttúrufræðingurinn - 1968, Qupperneq 57
NÁTTÚRUFRÆ.Ð1N GURINN
103
ofaníburðar- og steypuefnum. Víða er þó nægilegt magn af allgóð-
um ofaníburðarefnum, en skortur steypuefna eða öfugt. Þessi dreif-
ing er háð staðháttum og ýmsum landmótunaröflum.
I>ar sem námur eru sífellt að ganga til þurrðar og aðflutningur
efna verður lengri og dýrari, er mikils vert að námurnar séu vel
nýttar. Varðandi hverja námu þarf jarðfræðingur að athuga rúm-
þyngd hennar, kornadreifingu, leirinnihald og helztu bergefni og
gæði þeirra. Rétt dreifing kornastærða í ofaníburði er geysilega
mikilvæg fyrir slitþol vega.
Flestir þjóðvegir Islands eru mjög veikbyggðir, undirstaðan oft-
ast moldarjarðvegur með misjafnlega haldgóðu malarlagi til þess
að bera umferðina. Með tilkomu stórra jarðýtna hefur þó orðið
mikil bót hér á. Umferðin og bílaþunginn liefur auki/.t mjög hin
síðari ár og reynir því meira á vegina en áður. í raun og veru eru
flestir vegir landsins alltof lélegir til að þola hina miklu umferð
síðustu ára og hinar þungu bilreiðir. Þarf undirstaðan að vera
miklu betri, svo og slitlagið þykkara. Hinar miklu skemmdir vega
á hverju vori vegna frosts stafa af alltof lélegri undirstöðu og of
þunnu slitlagi fyrir núverandi umferð.
Árið 1959 tók Atvinnudeild Háskólans að sér að rannsaka steypu-
efnanámur í landinu, fyrir Ræktunarsjóð íslands. Rannsóknastofn-
un byggingariðnaðarins annast nú umfangsmiklar rannsóknir á
gæðum og endingarþoli steinsteypu. Hlutverk jarðfræðings er þar
lyrst og fremst að kanna námur, sem vinna má gott steypuefni úr.
Að lokum skal minnzt á, að nú er í byggingu nýtt húsnæði fyrir
Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins að Keldnaholti og verður
fyrsti áfangi væntanlega tilbúinn um næstu áramót. Búast má við,
að starfslið stofnunarinnar aukist eitthvað næstu árin. Líklegt er,
að full j)<>rf verði fyrir einn jarðfræðing til viðbótar jjeim, er
|>etta ritar, í náinni framtíð með sérþekkingu í bergfræði til að
annast rannsóknir varðandi undirstöður brúa og annarra mann-
virkja og kanna steypuskemmdir. Hingað til hefur stofnunin orðið
að kaupa slíkar rannsóknir frá ýmsum aðilum.