Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1968, Side 60

Náttúrufræðingurinn - 1968, Side 60
106 NÁTTÚRUFRÆÐIN GURINN Smjörlauf (grasvíðir) er auðþekkt á nærri kringlóttum, smá- um, oftast gljáandi blöðunum. Stönglarnir liggja flatir og eru oft- ast huldir af mosa og mold, en upp af þeim spretta nokkurra sentimetra háir smásprotar eða greinaendar, er bera litla rekla í oddinn. Eru reklarnir oft hálfhuldir milli blaðanna. Rekilhlíf- arnar græn- eða gulleitar, eða rauðleitar á karlreklum. Hin örsmáu, hærðu fræ fjúka burt, aðallega í þurru veðri, þegar þroskað hýðis- aldinið opnast. Smjörlauf er mjög harðgert og nægjusamt. Myndar stórar breiður í snjódældum. Snjórinn hlífir á vetrum, en vaxtar- tíminn er oft æði stuttur, svo að það verður að taka fljótt við sér, þegar snjóinn leysir. Rakt er í snjódældunum og á vorin sevtlar þar um leirblandið leysingarvatn. Smjörlaufið þarf þarna mörg ár til að mynda nokkurra millimetra gilda, oft hnútótta stofna. Fund- izt hafa um litlafingurgildir stofnar og eru þeir sennilega mjög gamlir. Hægt er að rækta smjörlauf í steinhæðum i görðum og verður jjað þar öllu stærra og grófara en úti á víðavangi. Til er afbrigði (f. fruticosa), stórvaxnara og með stærri blöð en venju- legt smjörlauf. Ennfremur bastarðar smjörlaufs og annarra víðiteg- unda. Smjörlauf vex víða í köldum löndum, bæði austan hafs og vestan, og uppi í fjöllum suður um alla Evrópu og í hálendi Mið- Asíu. Það vex norður á 78. bieiddargráðu í Vestur-Grænlandi og uppi í 2170 m hæð yfir sjó í Jötunheimafjöllum í Noregi. Hinn frægi, sænski grasafræðingur Linné kallaði smjörlaufið „Minima inter arbores,“ þ. e. minnst allra trjáa. En gagnsamlegt er það, þótt lítið sé. Það er gott til sauðfjárbeitar og Norðmenn segja, að hreindýr sæki í Jrað. Geitur sömuleiðis. Smjörlauf er líka mikilvæg fæða fyrir rjúpur. Það hafa rjúpurannsóknir þeirra Arn- þórs Garðarssonar og Finns Guðmundssonar síðustu árin sýnt og sannað. Smjörlauf er geysihaglegur dvergrunni, þegar á allt er litið.

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.